Fara í efni
Umræðan

Lið píludeildar Þórs Íslandsmeistari U18

Hópurinn frá píludeild Þórs. Nöfn keppenda er að finna með mynd inni í fréttinni. Mynd: dart.is.
Lið píludeildar Þórs vann um helgina Íslandsmeistaratitil félagsliða U18 ára. Mótið fór fram á Akranesi og var þetta í fyrsta skipti sem Íslandsmót félagsliða fer fram í þessum aldursflokki.
 
Lið Þórs, sem var skipað átta drengjum og tveimur stúlkum, hafði forystu eftir fyrri keppnisdag, var þá með 153 stig, en lið Pílufélags Reykjavíkur og Pílufélags Kópavogs voru ekki langt á eftir, bæði með 141 stig. Svo fór þó að lokum að lið Þórs tryggði sér sigurinn, endaði með 233 stig, 17 stigum meira en næsta lið.
 

Lið píludeildar Þórs sem vann Íslandsmót félagsliða í U18 ára flokki. Aftasta röð frá vinstri: Guðbrandur Bjarni Björgvinsson, Baltasar Ragnar Birgisson, Björn Helgi Ingimarsson og Andri Snær Hannesson. Miðröð frá vinstri: Júlían Máni Jóhannsson, Hrefna Lind Jónasdóttir og Axel James Wright. Fremsta röð frá vinstri: Breki Þór Sævarsson, Halldór Jarl  Birgisson og Rakel Málfríður Egilsdóttir. Mynd: píludeild Þórs.

Fyrri keppnisdaginn vann Hrefna Lind Jónasdóttir einmenninginn í stúlknaflokki og svo tvímenninginn einnig með Rakel Málfríði Egilsdóttur. Af drengjunum náðu Axel James Wright og Baltasar Ragnar Birgisson bestum árangri, enduðu í 3.-4. sæti í tvímenningnum. Axel James fór einnig í undanúrslit í einmenningi, en aðrir keppendur féllu úr keppni í 16 liða úrslitum.

Seinni daginn fór fram liðakeppni þar sem píludeild Þórs tefldi fram tveimur fjögurra manna liðum í drengjaflokki og einu tveggja manna liði í súlknaflokki. Í liðakeppninni var fyrst keppt í riðlum og síðan í útsláttarkeppni. Annað lið Þórs, skipað þeim Axel James, Baltasar Ragnari, Birni Helga og Guðbrandi Bjarna, fór alla leið og vann liðakeppnina, en hitt endaði í 3.-4. sæti. Súlknaliðið endaði í 3.-4. sæti. 
 

Sigurvegarar í tvímenningi úr liði Þórs, Hrefna Lind og Rakel Málfríður. Hrefna vann einnig sigur í einmenningi á fyrri keppnisdeginum. Mynd: dart.is.

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00