Kosningamiðstöðvar framboðanna opnaðar
Það styttist óðum í bæjarstjórnarkosningarnar og framboðin eru í óðaönn að undirbúa kosningaslaginn. Fimm af átta framboðum verða með fastar kosningamiðstöðvar þar sem almenningur getur komið og hitt frambjóðendur. Hin þrjú framboðin eru ekki með fastan samastað heldur nýta sér ýmis tilefni til þess að hitta fólk, t.d. fyrirtækjaheimsóknir eða standa fyrir uppákomum.
Akureyri.net hefur tekið saman upplýsingar yfir kosningaskrifstofur í bænum og opnunartíma þeirra:

Framsókn og L-listinn eru í sama húsi við Kaupvangsstræti 1 en á sitthvorri hæðinni.
Framsókn
Framsókn hefur komið sér fyrir á annarri hæð í Fujihúsinu við Kaupangsstræti. Þar bjóða frambjóðendur fólk velkomið í vöfflukaffi alla laugardaga milli kl. 11 og 13. Kosningaskrifstofan er annars opin aðra daga vikunnar milli kl. 15 og 17 (lokað á sumardaginn fyrsta).

Kjósendur geta slegið tvær flugur í einu höggi með því að heimsækja Kaupangsstræti 1 því þar eru tvö framboð í sama húsi.
L-listinn
L-listinn hefur komið sér fyrir á fyrstu hæð í Fujihúsinu við Kaupangsstræti og opnar kosningaskrifstofu sína formlega á sumardaginn fyrsta með vöfflukaffi milli kl. 12 og 15. Söngkonan Tinna Óðins mætir einnig á svæðið og tekur lagið. Virka daga verður kosningaskrifstofan opin milli kl. 16 og 18 og um helgar milli kl. 13 og 15.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar verður hægt að hitta á skrifstofu þeirra í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð.
Samfylkingin
Samfylkingin opnar formlega kosningaskrifstofu sína í húsnæði sínu í Sunnuhlíð kl. 11 á sumardaginn fyrsta en þá verður blásið til fjölskylduhátíðar. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og Elsa María sjónlistakennari og frambjóðandi verður með skapandi smiðjur fyrir börnin. Kosningaskrifstofa Samfylkingarinnar verður opin alla virka daga milli kl. 15 og 17 og á laugardögum milli kl. 10 og 12.

Beint á móti Elko við Furuvelli hafa Sjálfstæðismenn komið sér fyrir.
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið sér fyrir í húsnæði við Furuvelli 5, þar sem Ormsson var áður til húsa. Kosningaskrifstofa flokksins verður formlega opnuð á sumardaginn fyrsta með vöfflukaffi milli kl. 14 og 16. Frá þeim degi verður fastur opnunartími á virkum dögum milli kl. 16 og 18. Um helgar verður opnunartíminn lengri og ýmsir viðburðir í boði.

Vinstri Græn opna sína kosningamiðstöð þann 1. maí í Brekkugötu 7.
Vinstri græn
Kosningamiðstöð Vinstri grænna opnar 1. maí kl. 15 í húsnæði flokksins að Brekkugötu 7. Þar verður boðið upp á heimagerðar veitingar. Kosningamiðstöðin verður opin alla daga fram að kosningum milli kl. 15 og 17.
Akureyrarlistinn og Viðreisn verða ekki með kosningaskrifstofu. Miðflokkurinn reiknar heldur ekki með að vera með kosningaskrifstofu.
Gott er að fylgjast með á Facebooksíðum framboðanna hvaða viðburðir eru í gangi.
Afreks Akademía Akureyrar
Hver stendur með kennurum – ef einhver?
Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand
Villandi samanburður við Norðmenn