Fara í efni
Umræðan

KA-strákarnir úr leik í Evrópudeildinni

Strákarnir í 2. flokki KA í knattspyrnu léku seinni leik sinn gegn gríska liðinu PAOK úti í Grikklandi í gær í 2. umferð Evrópukeppni ungmennaliða 19 ára og yngri. Rétt eins og í fyrri leiknum á Akureyri unnu Grikkirnir 2:0 sigur og KA er því úr leik.

KA tryggði sér rétt til að leika í Evrópukeppninni með því að landa Íslandsmeistaratitlinum í 2. flokki í fyrra. Strákarnir slógu lettneska liðið FS Jelgava út í fyrstu umferðinni en hið geysisterka lið PAOK reyndist númeri of stórt að þessu sinni. Mörkin í leiknum í gær komu bæði undir lokin en þrátt fyrir tap í báðum leikjum gegn Grikkjunum mega KA-menn vera sáttir við frammistöðu sína í viðureigninni.

Að fá tækifæri til að taka þátt í Evrópukeppni og spila alvöru keppnisleiki gegn erlendum andstæðingum er sannarlega bæði eftirminnileg upplifun og lífsreynsla fyrir unga íþróttamenn og stórt innlegg í reynslubankann að auki. 

Leikskýrslan á vef UEFA.

Stafrænt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi: alvarlegt og vaxandi samfélagsmein

Tryggvi Hallgrímsson skrifar
06. desember 2025 | kl. 11:00

Opið bréf til stjórnvalda

Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir starfsmenn lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri skrifa
03. desember 2025 | kl. 10:00

Fundur á Akureyri um hættulega úrelta stjórnarskrá Íslands

Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir skrifa
28. nóvember 2025 | kl. 18:00

Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur

Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar
27. nóvember 2025 | kl. 10:30

Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 17:30

Eflum SAk

Ingvar Þóroddsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 15:10