Fara í efni
Umræðan

KA mætir KR í Bestu deildinni í Laugardal

Fyrsta marki KA í sumar; Ásgeir Sigurgeirsson og Bjarni Aðalsteinsson fagna eftir að Ásgeir skoraði gegn KR í fyrstu umferð Íslandsmótsins 6. apríl, eftir undirbúning Bjarna. Viðar Örn Kjartansson í fjarska. Myndir: Skapti Hallgrímsson

KA sækir KR heim í dag í 14. umferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Liðin mætast á heimavelli Þróttar í Laugardal, AVIS-vellinum, þar sem vinna stendur enn yfir við leggja gervigras á KR-völlinn vestur í bæ. Leikurinn hefst kl. 16.00 og verður sýndur á einni sjónvarpsrása Sýnar Sports.

KA-menn tóku á móti KR-ingum í fyrstu umferð Íslandsmótsins 6. apríl í bráðfjörugum leik. Þá varð jafntefli, 2:2, þar sem öll fjögur mörkin voru gerð í fyrri hálfleik: Luke Rae skoraði fyrst fyrir KR, Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði og Hans Viktor Guðmundsson kom KA yfir en Jóhannes Kristinn Bjarnason jafnaði.

  • Besta deild karla
    Þróttarvöllurinn (AVIS-völlurinn) í Laugardal kl. 16
    KR - KA

KR er í áttunda sæti Bestu deildarinnar með 16 stig að loknum 13 leikjum en KA er í 11. og næst neðsta sæti með 12 stig, einnig eftir 13 leiki.

Þótt aðeins muni þremur sætum og fjórum stigum á liðunum er samanburður á markatölum þeirra sláandi; KA hefur gert 12 mörk en fengið á sig 25, KR hefur hins vegar skorað 34 mörk og fengið jafn mörg á sig.

Staðan í deildinni

Ef við getum ekki lækkað fasteignaskatt, þá eigum við að hagræða

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
03. júlí 2025 | kl. 14:00

Verulegt rými til framfara

Árni Guðmundsson skrifar
02. júlí 2025 | kl. 11:00

Látið hjarta Akureyrar í friði

Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
01. júlí 2025 | kl. 06:00

Fiskeldi og samfélagsábyrgð

Eyjólfur Ármannsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 09:45

Hver borgar brúsann?

Ingibjörg Isaksen skrifar
28. júní 2025 | kl. 12:00

Börn eiga skilið að alast upp í friði – þrátt fyrir breyttar aðstæður

Halldóra K. Hauksdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 16:30