KA enn í fallsæti eftir tap gegn FH
FH lagði KA 3:0 á heimavelli sínum í dag í viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni neðri hluta efstu deildar karla í knattspyrnu. Sex lið berjast um að forðast fall og úrslitin í fyrstu umferðinni voru á þá leið að neðstu liðin þrjú töpuðu öll gegn liðunum þremur sem eru ofar. KA er því ennþá í 11. og næstneðsta sætinu með 20 stig, tveimur stigum á undan ÍBV og einu stigi á eftir Þór, sem er í síðasta örugga sætinu. Það er því ljóst að viðureign KA og Þórs næstkomandi laugardag mun hafa gríðarlega þýðingu í þessari hatrömmu fallbaráttu.
KA var ekki lélegra liðið í leiknum
Þó að það kunni ef til vill að hljóma undarlega þá var KA alls ekki lakara liðið í leiknum í dag. Úrslitin réðust fyrst og fremst á því að FH skoraði mörk en KA nýtti ekki sín færi. KA-menn voru sprækari í byrjun leiks og réðu ferðinni án þess að ná að ógna mark heimamanna að ráði fyrr en um miðjan fyrri hálfleikinn. Eftir gott spil á vinstri kantinum lagði Mikael Breki Þórðarson boltann út í miðjan vítateig FH þar sem Guðjón Ernir Hrafnkelsson var í dauðafæri, einn á tiltölulega auðum sjó. Skotið var hins vegar ekki alveg nógu gott og Jökull Andrésson markvörður náði að bjarga með fætinum.
Á 27. mínútu, rétt á eftir þessu færi komust FH-ingar yfir og óhætt að segja að það hafi verið gegn gangi leiksins. Kjartan Kári Halldórsson splundraði KA-vörninni með glæsilegri sendingu inn á Adolf Daða Birgisson. Hann komst einn gegn Ívari Arnbro Þórhallssyni markverði sem kom út á móti en Adolf Daði vippaði boltanum þá snyrtilega yfir hann og í netið. Leikurinn jafnaðist töluvert eftir markið og stuttu síðar fengu FH-ingar hornspyrnu þar sem Birkir Valur Jónsson náði góðum skalla sem stefndi í markhornið en varnarmaður KA náði að hreinsa frá nánast af marklínu.
Rothögg skömmu eftir leikhlé
KA-menn komu ákveðnir til leiks eftir leikhlé og Birgir Baldvinsson og Danijel Dejan Djuric fengu báðir ágætis færi snemma hálfleiksins, sem ekki nýttust. Og líkt og í fyrri hálfleiknum refsuðu FH-ingar. Á 53. mínútu fékk Tómas Orri Róbertsson boltann talsvert fyrir utan vítateig vinstra megin og lét vaða að marki. Boltinn hafnaði efst í markhorninu fjær, algerlega óverjandi. Mark sem kom nánast upp úr þurru.
Og til að kóróna lánleysi KA komust FH-ingar í 3:0 aðeins fjórum mínútum seinna, með sjálfsmarki André Römer. Hinn spræki hægri kantmaður Gils Gíslason sendi þá fasta sendingu fyrir markið og Römer setti fótinn út með þeim afleiðingum að boltinn fór af honum og í markhornið. Sannarlega klaufalegt mark og með því gerðu FH-ingar eiginlega út um leikinn. Ekki síst eftir að Guðjón Ernir klúðraði ágætu færi á 67. mínútu þegar hann hitti boltann afar illa í fínu færi.
KA-menn gerðu það sem þeir gátu til að rétta sinn hlut en varð ekkert ágengt. FH-ingar vörðust skipulega og þrjár skiptingar KA rétt eftir að þriðja markið kom breyttu litlu. Fjórðu skiptinguna neyddust þeir svo til að gera þegar um tíu mínútur lifðu leiks þegar Ívar markvörður meiddist og Steinþór Már Auðunsson kom inn á. Steinþór hefur sjálfur verið að ná sér eftir handarbrot og verið frá keppni vikum saman en virðist vera búinn að ná sér. Þá var Hallgrímur Mar Steingrímsson meðal varamanna og kom inn á í dag en hann missti af sigurleiknum gegn Breiðabliki vegna meiðsla. Bróðir Hallgríms, Hrannar Björn Steingrímsson kom svo inn á undir lokin en hann hefur verið frá æfingum og keppni í nokkra mánuði eftir að hafa slitið hásin. Sannarlega gleðilegt og mikilvægt bæði fyrir Hrannar og KA að hann sé mættur aftur til leiks.
Línur strax farnar að skýrast
Segja má að línur hafi dálítið skýrst eftir þessa fyrstu umferð fallbaráttunnar. Sigrar Stjörnunnar og Vals gera það að verkum að þau lið eru nánast alveg hólpin, þótt fjórar umferðir séu ennþá eftir. FH styrkti stöðu sína í fjórða neðsta sæti og útlitið dökknaði hjá þremur neðstu liðunum, Þór, KA og ÍBV, sem öll töpuðu. Viðureign KA og Þórs í næstu umferð verður afar þýðingarmikil eins og áður sagði en eftir þá umferð verður gert hlé á keppninni til 10. október.
Lið KA: Ívar Arnbro Þórhallsson (Steinþór Már Auðunsson 63.) - Hans Viktor Guðmundsson, André Römer, Markús Máni Pétursson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Snorri Kristinsson, Jeppe Pedersen (Hallgrímur Mar Steingrímsson 58.), Mikael Breki Þórðarson (Hrannar Björn Steingrímsson 80.), Birgir Baldvinsson - Adam Ægir Pálsson (Jakob Snær Árnason 58.), Danijel Dejan Djuric (Jakob Héðinn Róbertsson 58.).
Staðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar
Nú er hefðbundinni 22 leikja deildarkeppni lokið. Sex efstu liðin halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu liðin að þeirri viðbót lokinni falla úr deildinni.
Leikir KA í neðri hlutanum eru sem hér segir, með fyrirvara um breytingar:
- Sunnudag 13. september
FH - KA 3:0 - Laugardag 19. september
KA - Þór - Laugardag 10. október
Stjarnan - KA - Laugardag 17. október
Valur - KA - Laugardag 24. október
KA - ÍBV
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi
Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum
Námaskarð, öryggismál
Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga