Fara í efni
Umræðan

Gróf líkamsárás, ölvun og heimilisofbeldi

Gróf líkamsárás er til rannsóknar hjá lögreglu eftir gærkvöldið, að því er fram kemur í tilkynningu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra um verkefni gærdagsins. Fimm gistu í fangaklefa í nótt, einn vegna nefndrar líkamsárásar, tveir vegna heimilisofbeldis og tveir vegna ölvunar- og vímuástands. Tvö slys eru skráð vegna falls af hlaupahjóli og í öðru tilvikinu er grunur um að viðkomandi hafi stýrt hjólinu undir áhrifum vímugjafa.

Mikill erill var hjá lögreglunni síðastliðinn sólarhring enda margt um manninn og fjölmenni á tónleikum í gærkvöld. Alls eru 86 mál skráð í kerfi lögreglu þennan sólarhring, en langflestir skemmtu sér vel og nutu dagskrárinnar.

Athygli vekur að í tilkynningu lögreglu frá því í morgun um verkefni síðastliðins sólarhrings er ekkert minnst á handtökur sem áttu sér stað með aðstoð sérsveitarmanna við gatnamót Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis. Fram hefur komið í fréttum að þar hafi fundist vopn í tveimur bifreiðum og að upphafið að því hafi verið tilkynning til lögreglu um að maður hafi miðað skotvopni að öðrum manni. Í frétt á Vísi seint í gærkvöld kemur aftur á móti fram að samkvæmt heimildum miðilsins hafi umræddir einstaklingar verið með leikfangabyssur sem keyptar hafi verið í verslun á Akureyri fyrr um daginn. 

Helstu verkefni gærdagsins, samkvæmt tilkynningu lögreglunnar í morgun:

  • Fimm einstaklingar gistu í fangaklefa, tveir vegna heimilisofbeldis, tveir vegna ölvunar og vímuástands og einn vegna grófrar líkamsárásar og er það mál til rannsóknar.
  • Sjö mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og foreldrar upplýst.
  • Sextán umferðarlagabrot eru skráð síðastliðinn sólarhring og fimm þeirra vegna aksturs undir áhrifum áfengis.
  • Tvö umferðaslys eru skráð og bæði þeirra vegna falls af hlaupahjóli, hvorugur aðilinn alvarlega slasaður en annar þeirra grunaður um að hafa stýrt hjólinu undir áhrifum vímugjafa, báðir voru þeir fluttir undir læknishendur til skoðunar.
  • Eitt fíkniefnamál kom upp þar sem grunur er um sölu og dreifingu fíkniefna og nokkuð magn fíkniefna haldlagt, málið er áfram til rannsóknar.
  • Nokkuð var um ryskingar og ólæti sem og þurfti að aðstoða allmarga vegna ölvunar og vímuástands.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15