Fara í efni
Umræðan

Golf: Bryndís Eva endaði í 20. sæti

Keppendurnir fjórir frá Íslandi: Arnar Daði Svavarsson, Máni Freyr Vigfússon, Bryndís Eva Ágústsdóttir og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir. Mynd: golf.is

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr GA lék á 79 höggum eða 7 höggum yfir pari á þriðja og síðasta hring á European Young Masters golfmótinu í Frakklandi í dag. Samtals lék hún hringina þrjá á 227 höggum eða 11 höggum yfir pari. Hún endaði jöfn annarri stúlku í 20. sæti af 58, sem er sannarlega frábær frammistaða.

Að fá tækifæri til að keppa í mótum á erlendri grund er gríðarlega dýrmæt reynsla og hækkar innstæðuna í reynslubanka Bryndísar Evu umtalsvert.

Eins og fram kom í frétt akureyri.net í gær er Bryndís Eva einn fjögurra kylfinga sem valdir voru fyrir Íslands hönd til að taka þátt í þessu móti, sem er fyrir 16 ára og yngri. Tvær stúlkur og tveir piltar kepptu fyrir Ísland og auk einstaklingskeppninnar er líka keppt í liðakeppni, þar sem lægsta skor þriggja kylfinga af fjórum gildir. Íslenska liðið hafnaði  þar í 20. sæti af 28 liðum.

Það eru breyttir tímar

Þóroddur Ingvarsson skrifar
24. ágúst 2026 | kl. 09:45

Já, við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins

Arna Lára Jónsdóttir skrifar
24. ágúst 2026 | kl. 09:30

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00