Fara í efni
Umræðan

Geðheilsuefling Andrésar andar

Metþátttaka var á nýafstöðnum Andrésar andar leikum sem voru þeir 50. í röðinni. Akureyri.net sagði frá þessum merku tímamótum og að þrír úr fyrstu Andrésar andar nefndinni sem eru á lífi hafi verið heiðraðir á setningarathöfninni, þeir Hermann Sigtryggsson, Ívar Sigmundsson og Gísli Kristinn Lórenzson. Með þeim í fyrstu nefndinni voru einnig Leifur Tómasson og Kristinn Steinsson.
 
Það var gaman að sjá myndir af þessum gömlu kempum sem voru hugmyndasmiðirnir og hófu þetta merkilega æskulýðsstarf og voru áberandi í bæjarlífinu á Akureyri fyrir hálfri öld og allir krakkar sem stunduðum Fjallið þekktu.
 
Viðurkenning þeirra er virkilega verðskulduð og allir skilja í dag gildi útivistar og hreyfingar. En sennilega eru áhrif á lýðheilsu, forvarnir og geðheilsuefling þessa verkefnis vanmetin. Fjölmargar rannsóknir sýna að það styrkir einbeitingu, úthald, lausnamiðun og markmiðssetningu að undirbúa sig fyrir keppni. Það er veruleg forvörn gegn sjúklegu þunglyndi og fleiri geðsjúkdómum að hreyfa sig reglulega og útivistin léttir líka geð. Fátt er mikilvægara fyrir andlegan þroska og þróun persónugerðar, á einmitt þessu aldurstímabili sem þátttakendur eru á, en góð samvera með félögum, foreldrum og systkinum. Og að fá hvatninguna og hvílast á milli atriða í þessum félagsskap gefur líka tækifæri til að læra betur á álagsvarnir og endurhleðslu.
 
Hermann, Ívar og Gísli. Kærar þakkir fyrir áhrifaríkt og dýrmætt framtak ykkar til geðheilsu íslenskra ungmenna og fyrir að vera svo góðar fyrirmyndir.
 
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00