Fara í efni
Umræðan

Fyrir hverja er foreldrafræðsla?

Í heiminn kemur lítið kraftaverk - öskrandi, klístrað og dásamlegt kraftaverk. Nýbakaðir foreldrar hafa varið tíma í að undirbúa komu erfingjans. Ef til vill hafa ættingjar og vinir lagt hönd á plóg við undirbúninginn. Sett saman vöggu, útbúið barnaherbergi, prjónað heimfararsett eða hafa keypt svo lítil föt að ómögulegt er að ímynda sér að nokkur mannvera muni passa í þau. Svo kemur þessi litla mannvera í heiminn og heimurinn snýst á hvolf. Aðstæður foreldra eru misjafnar, sumir svífa um á bleiku skýi í kjölfar fæðingar, aðrir ganga í gegnum veikindi, upplifa erfiðar tilfinningar, sumir hafa stórt stuðningsnet, aðrir ekki og einhverjir fá jafnvel ekki tækifæri til þess að mynda tengingu við nýburann sinn. Það sem allir foreldrar eiga þó sameiginlegt er að lífið er breytt til frambúðar. Nú er lítil ósjálfbjarga mannvera algjörlega upp á foreldrana komin. Og hvað nú?

Það er afar áhugavert að velta því fyrir sér hvers vegna það hefur ekki tíðkast hér á landi að foreldrar sækist eftir fræðslu um ýmsa þætti í tengslum við uppeldi, stærsta hlutverkið sem við fáum í lífinu. Allir vilja að börnum sínum líði vel og að þeim farnist vel í framtíðinni. Tækifæri og aðstæður foreldra eru auðvitað misjafnar og þekking og reynsla þeirra mismikil þegar í aðstæðurnar er komið. Það er því miður stundum þannig að foreldrar upplifa að það sé „tabú“ að sækja sér fræðslu um þroska barna, uppeldi, samskipti og svo margt fleira sem foreldrar fást við. Hefur þú velt því fyrir þér hvernig viðhorfin þín eru gagnvart foreldrafræðslu?

Foreldrar virðast oft á tíðum halda að með því að sækja sér fræðslu viðurkenni þeir vanmátt sinn, að þeir ráði ekki við hlutverk sitt. Þarna liggur stór misskilningur – það er einmitt merki um mikinn styrk að viða að sér þekkingu, læra um mismunandi uppeldisaðferðir, læra af fagaðilum og öðrum foreldrum. Uppeldi er nefnilega samvinnuverkefni, að því koma ekki bara foreldrar heldur líka ömmur og afar, frænkur og frændur, starfsmenn leikskóla og skóla, íþróttafélögin, vinir og vandamenn, jafnvel fagaðilar.

Með tilkomu nýrrar námsleiðar hjá Háskóla Íslands, Foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, er að stækka ný starfsstétt hér á landi. Foreldra- og uppeldisráðgjöfum fer fjölgandi og er markmið þeirra að styðja við og styrkja foreldra í krefjandi hlutverki sínu. Þessir nýju fagaðilar eru komnir til að vera og eitt af fyrstu verkefnum þeirra er að hvetja til hugarfarsbreytingar. Ef við hjálpumst að, öll sem eitt, getum við breytt þessu hugarfari, að foreldrafræðsla sé „tabú“.

Foreldrafræðsla er fyrir alla. Alla þá sem vilja auka eigin vellíðan og vellíðan barna sinna. Kraftaverkið okkar getur verið svo nýtt að klístrið sé varla runnið af. Kraftaverkið getur líka verið að ganga í gegnum áskoranir unglingsáranna eða að feta fyrstu skref fullorðinsáranna og allt þar á milli. Innan foreldrafræðslu er pláss fyrir alla foreldra, óháð aldri barnanna. Fræðumst, lærum og ræðum saman til þess að fyrirbyggja vanda. Við þurfum ekki að bíða eftir því að áskoranirnar í uppeldinu verði svo stórar að þær virðist óyfirstíganlegar. Verum skrefinu á undan. Ákvarðanir sem við tökum núna hafa áhrif á framtíð okkar og barnanna okkar.

Hildur Inga Magnúsdóttir er foreldra- og uppeldisráðgjafi hjá Heilsu- og sálfræðiþjónustunni.

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45