Fara í efni
Umræðan

Frábær alfræðibók um garðinn og ræktun

AF BÓKUM – 83

Eftir nokkurra vikna sumarfrí tekur starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri upp þráðinn þar sem frá var horfið í júní og segir lesendum akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum í viku hverri. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _

Ræktaðu garðinn þinn – Vilmundur Hansen

Ræktaðu garðinn þinn er frábær, nýleg bók eftir einn þekktasta garðyrkjumann og grasafræðing landsins, Vilmund Hansen. Ég kynntist starfi hans í gegnum Facebook-hópinn Ræktaðu garðinn þinn, sem telur nú yfir 50.000 meðlimi. Þar ræðir fólk um ræktun, deilir myndum og spyr spurninga sem vakna á leiðinni. Ég hef haft bæði gaman og gagn af því að fylgjast með umræðunum.

Í bókinni er fjallað um ræktun fjölbreyttra plantna, meðal annars sumarblóma, kryddjurta og vor- og haustlauka. Hún er stútfull af fróðleik um ræktun, útlit og uppruna plantnanna og prýdd fjölmörgum fallegum og litríkum ljósmyndum. Þetta er frábær alfræðibók fyrir alla sem hafa áhuga á ræktun og garðyrkju eða vilja prófa ræktun í fyrsta sinn.

Undanfarin ár höfum við á bókasafninu prófað okkur áfram með ræktun í samfélagsgarðinum okkar með aðstoð krakka sem taka þátt í sumarsmiðjum og sögustundum. Það er dásamlegt að fylgjast með þeim sjá hvernig sáð er og gróðursett og síðan upplifa gleðina þegar fyrstu plönturnar spretta upp úr litlu fræjunum. Í ár sáðu þau klettasalati, dilli, gulrótum og spínati. Einnig voru gróðursett kóríander, salat og óreganó. Frá fyrri árum eigum við einnig myntu, graslauk, jarðarber og timjan í garðinum.

Krakkarnir hafa fengið að smakka af uppskerunni á viðburðunum Krítar og klettasalat, sem haldnir voru hjá okkur í sumar. Þar gátu þau bragðað á því sem vex í garðinum og notið þess að leika sér á glæsilegu útisvæði bókasafnsins.

Nú styttist í haustið og gulræturnar eru að verða tilbúnar til uppskeru. Því ætlum við að bjóða til útisögustundar og uppskeruhátíðar fimmtudaginn 27. ágúst kl. 16:30. Öll eru hjartanlega velkomin!

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30