Fara í efni
Umræðan

Fornbílar í göngugötunni á miðvikudagskvöldum

Fornbílaeigendur hafa safnast saman við menningarhúsið Hof öll miðvikudagskvöld undanfarin sumur – og bílarnir vakið mikla athygli. Áður en komið er að Hofi hafa þeir farið á „rúntinn“ og ekið göngugötuna. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hefur fengið undanþágu frá lokun göngugötunnar fyrir vélknúnum ökutækjum. Skipulagsráð hefur samþykkt beiðni deildarinnar um að fá að aka eftir göngugötunni á miðvikudagskvöldum frá maí og út september.

Skipulagsráð samþykkti í lok apríl erindi Þorgils Sævarssonar frá fornbíladeild Bílaklúbbsins þar sem óskar var undanþágu frá akstursbanninu. Fornbílaeigendur hafa safnast saman við Hof og stillt bílunum upp og hafa áhuga á að taka „rúnt“ og fara um göngugötuna tvisvar á hverju miðvikudagskvöldi til reynslu. Skipulagsráð hafði áður frestað afgreiðslu erindisins í mars. Sóley Björk Stefánsdóttir, V-lista, greiddi atkvæði gegn því að leyfa undanþáguna.

Sams konar umsókn var hafnað af meirihluta skipulagsráðs í júní 2024 þar sem um væri að ræða „nýsamþykkta breytingu og telur ráðið ekki æskilegt að breyta reglum fyrr en reynsla er komin á framkvæmdina.“ Helgi Sveinbjörn Jóhannsson, M-lista, sat hjá við þá afgreiðslu og Þórhallur Jónsson, D-lista, bókaði á móti afgreiðslu ráðsins þar sem hann taldi að akstur fornbílanna glæddi miðbæinn auknu lífi og skapaði stemningu. 

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00