Fara í efni
Umræðan

VA arkitektar hanna íþróttamiðstöð Þórs

Gert er ráð fyrir íþróttamiðstöð Þórs á því svæði sem þarna er teiknað rautt. Mynd: Þorgeir Baldursson

Akureyrarbær hefur ákveðið að semja við VA Arkitekta í Reykjavík um arkitektahönnun á íþróttahúsi og félagsaðstöðu fyrir Íþróttafélagið Þór. Alls bárust 10 tilboð í verkefnið. Tilboð VA Arkitekta var næst lægst í krónum talið, 71 milljón króna, en lægst þegar tillit var tekið til allra þátta.

Eftir því sem næst verður komist stendur til að fulltrúar Akureyrarbæjar og VA Arkitekta undirriti samning í vikunni og fulltrúar arkitektastofunnar skoði aðstæður á Þórssvæðinu í næstu viku og fundi með forráðamönnum félagsins. „Við erum mjög spenntir að svona stór og flott stofa hafi fengið þetta verkefni. Nú fara í hönd gríðarlega spennandi tímar sem er hönnunarvinna við húsið og þar ætlum við að vanda til verka með Akureyrarbæ og þessari arkitektastofunni,“ sagði Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs við akureyri.net í dag.

Á vef VA Arkitekta má sjá nokkur íþróttamannvirki sem fyrirtæki hefur hannað:

  • Íþróttahúsið Kórinn í Kópavogi 2006
  • Dalslaug í Úlfarsárdal 2021
  • Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal 2022

Tvær fréttir akureyri.net um málið frá því í febrúar:

Þór fær íþróttahús – tekið í notkun 2031

Gleði í Hamri: Eitt stykki íþróttamiðstöð


Pláss fyrir 50 metra sundlaug?

Á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar, þar sem ákveðið var að ganga til samninga við VA Arkitekta, óskaði Ólafur Kjartansson  fulltrúi Vinstri grænna að eftirfarandi yrði bókað:

Það er eðlilegt að það verði kannað í alvöru hvort hægt sé að hanna mannvirkin þannig að pláss verði fyrir 50 m sundlaug á svæðinu. Það myndi fela í sér umtalsverða rekstrarhagkvæmni ef það væri mögulegt að tengja 50 m sundlaug öðrum íþróttamannvirkjum.

Allir með

Linda Guðmundsdóttir og Kristján Sturluson skrifa
13. júní 2026 | kl. 10:00

Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra

Jónas B. Guðmundsson skrifar
11. júní 2026 | kl. 06:00

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00