Fara í efni
Umræðan

EasyJet: Til og frá London allan október

Þota easyJet á Akureyrarflugvelli í fyrsta flugi vetrarins í október sl. Mynd: Þórhallur Jónsson.

Eins og búist var við hefur flugfélagið easyJet bætt við flugferðum milli Akureyrar og Gatwick-flugvallar í London í október í haust. Samkvæmt áætlun félagsins sem birt var í janúar átti flugið til Lundúna að hefjast 27. október en nú er búið að bæta við ferðum á laugardögum og þriðjudögum frá og með 3. október. Þessi viðbótarflug fram til 27. október verða þó ekki á sama tíma og þau flug sem áður voru komin í sölu.

  • Fyrstu fjóra laugardagana í október verður flogið frá Akureyri kl. 17:55 og lent á Gatwick kl. 22:20 en frá og með 31. október verður flogið kl. 13:10 frá Akureyri og lent á Gatwick kl. 16:15.
  • Fyrstu þrjá þriðjudagana í október er flogið frá Akureyri kl. 9:30 og lent á Gatwick kl. 13:55 en frá og með 27. október verður flogið kl. 14:40 frá Akureyri og lent á Gatwick kl. 17:45.

Þriðjudagsvélin frá Gatwick leggur af stað kl. 6 að morgni, þannig að farþegar á leið til Akureyrar eru að lenda rétt fyrir kl. hálfníu að morgni. Laugardagsvélin leggur hins vegar ekki af stað frá Gatwick fyrr en laust fyrir kl. 14, þannig að bæði A og B manneskjur ættu að geta fundið sér flug við hæfi!

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00