Blak: KA hafði betur í nágrannaslagnum
KA hafði betur gegn Völsungi frá Húsavík í viðureign liðanna í efstu deild karla í blaki í KA-heimilinu í gærkvöld. KA vann þrjár hrinur en gestirnir eina og eru KA-menn ennþá í hörkubaráttu í toppslagnum.
KA vann fyrstu hrinuna mjög örugglega, 25:14, en Húsvíkingar bitu vel frá sér í jafnri annarri hrinu. KA náði þó að tryggja sér 25:23 sigur að lokum. Þriðja hrina þróaðist á svipaðan hátt og var lengi vel í járnum en núna voru það Húsvíkingar sem voru sterkari á endasprettinum og unnu hrinuna 25:20. Fjórðu hrinu vann KA örugglega, 25:18 og leikinn þar með 3:1.
Mikilvæg 3 stig í toppbaráttunni hjá KA og liðið er nú með 36 stig í þriðja sætinu en efstu liðin hafa leikið misjafnlega marga leiki. Næsti leikur KA verður gegn Þrótturum úr Neskaupstað í KA-heimilinu næstkomandi laugardag.
Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?
Framboð sem byggir á trú á Akureyri
„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli
Hreint ekki eins og atvinnuviðtal