Fara í efni
Umræðan

Áhrifarík blanda af fegurð og sjokki

Sýningin Fegurð fjarða sameinar ljósmyndalist, umhverfisvitund og samfélagslega ábyrgð. Sýningin minnir fólk á að náttúran, með allri sinni fegurð, er líka brothætt. Mynd: SNÆ

Átján ljósmyndir á níu stólpum prýða nú göngustíginn frá Torfunefsbryggju að Höepfner. Myndirnar eru hluti af ljósmyndasýningunni Fegurð fjarða sem opnuð var um sjómannadagshelgina víða á Norðurlandi. Markmið sýningarinnar er að vekja fólk til umhugsunar og læra að taka ábyrgð á umgengni við haf og strönd.

Það er Vitafélagið - íslensk strandmenning sem stendur á bak við verkefnið í samstarfi við fleiri, en fram til 1. október verða fjölbreyttir viðburðir í boði í formi fræðslu, listsköpunar, gjörninga, tónlistar og myndlistar, auk ljósmyndasýninga og fræðslusýninga víða við Eyjafjörð.

 

Óspillt náttúra fönguð en líka mengun

Að sögn Sigurbjargar Árnadóttur, formanns Vitafélagsins - íslenskrar strandmenningar, hefur félagið undanfarin ár alltaf haldið málþing úti á landi á vorin í samstarfi við heimamenn. Í ár kom upp sú hugmynd að sleppa málþinginu og fara þess í stað út í ljósmyndaverkefni sem snýst um að varpa ljósi á þá staðreynd að loftslagsbreytingar og sjávarmengun hafi bein áhrif á dýrmætan menningararf við strendur landsins.  Ljósmyndarinn og kajakræðarinn Veiga Grétarsdóttir var fengin til að róa um firðina á Eyjafjarðarsvæðinu síðastliðið haust og vetur og fanga bæði óspillta náttúru og áþreifanlega mengun í formi plasts og annarra rusltegunda sem rekur á fjörur. Útkoman er áhrifarík blanda af fegurð og sjokki. „Þetta eru bæði myndir af tærri fegurð fjarðanna og undurfögru sólarlaginu, en líka af því sem ekki er eins fallegt. Af fuglinum sem er að reyna að búa til hreiður úr plastrusli, selnum með plast um hálsinn og er í dauðateygjunum, og rusli í fjöru.“ 

Þetta eru bæði myndir af tærri fegurð fjarðanna og undurfögru sólarlaginu, en líka af því sem ekki er eins fallegt. Af fuglinum sem er að reyna að búa til hreiður úr plastrusli, selnum með plast um hálsinn og er í dauðateygjunum, og rusli í fjöru.

Vekja athygli á rusli við sjávarsíðuna

Sigurbjörg segir vel við hæfi að sýningin hafi opnað um sjómannadagshelgina enda hafið starfsvettvangur sjómannastéttarinnar. „Þeim er nú oft kennt um það sem þeir oft ekki eiga. Rusl við strendur og firði er alveg jafnt landbúnaðinum að kenna eins og sjávarútveginum. Og markmiðið með þessu verkefni er bara að vekja athygli almennings á öllu því rusli sem berst til sjávar og á strendur landsins því mengun sjávar þýðir breytt loftslag sem þýðir líka hækkun sjávar,“ segir Sigurbjörg og nefnir sem dæmi að þess verði ekki langt að bíða þar til Siglunes verði eyja en ekki tangi. Fólk getur hins vegar gert ýmislegt til að sporna við þróuninni og minnt hvort annað á að taka ábyrgð.  Til dæmis getur kynnir á bæjarhátíð minnt fólk á að passa upp á sælgætisbréf barna sinna eða plastglasið undan bjórnum svo það fjúki ekki út í sjó. 

Á Akureyri er búið að setja upp 18 ljósmyndir meðfram sjónum en sýningin teygir sig líka til Grenivíkur, Ólafsfjarðar, Dalvíkur, Siglufjarðar, Hjalteyrarar og í Svarfaðardal. Það er Vitafélagið - íslensk strandmenning sem stendur á bak við framtakið en félagið var stofnað árið 2003 til að varðveita og vekja athygli á íslenskri strandmenningu.

Gott tækifæri til útikennslu í haust

Auk ljósmyndanna sem komið hefur verið upp meðfram sjónum á Akureyri hafa ljósmyndir einnig verið settar upp á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Hjalteyri, Grenivík og á Skeiði í Svarfaðardal. Allar eru sýningarnar á þessum stöðum ólíkar og myndirnar settar upp á mismunandi hátt. Á gistiheimilinu Skeiði í Svarfaðardal er þeim t.d. raðað upp á vegg eins og fjölskyldumyndum en á Ólafsfirði eru þær hengdar upp í nótadræsur. Eins og áður segir stendur sýningin til 1. október og vonast Sigurbjörg til þess að kennarar og aðrir hópar nýti tækifærið í haust til útikennslu og vitundarvakningar t.d. í formi plokkdaga en verkefnið er unnið í samstarfi við Umhverfisstofnun og Minjastofnun, sem eru tilbúnar að koma með stutta fræðslu í skóla og á vinnustaði.


Það er tilvalið að fá sér göngutúr og skoða útiljósmyndasýninguna Fegurð fjarða sem nú stendur yfir á Akureyri og fleiri stöðum við Eyjafjörð. Allar myndirnar á sýningunni eru teknar af Veigu Grímsdóttur. 

Skipulagsbreytingar og grundvallaratriði

Árni Guðmundsson skrifar
06. júní 2025 | kl. 21:45

Héraðs­vötn og Kjalöldu­veitu í nýtingar­flokk

Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson skrifa
06. júní 2025 | kl. 21:30

Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður

Starfsfólk FÉLAK - Félagsmiðstöðva Akureyrar skrifar
05. júní 2025 | kl. 19:00

Að lenda í hakkavélinni

Gréta Bergrún Jóhannesdóttir skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:30

Schengen er sannarlega vandamálið

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
03. júní 2025 | kl. 11:00

Stóraukið fjármagn í viðhald vega á landsbyggðinni

Eyjólfur Ármannsson skrifar
02. júní 2025 | kl. 15:00