Fara í efni
Umræðan

Aftur tvöfaldur bikarfögnuður KA?

Stoltir fyrirliðar eftir að KA varð bikarmeistari bæði í karla- og kvennaflokki fyrir hálfum mánuði! Zdravko Kamenov, Gísli Marteinn Baldvinsson, Amelía Ýr Sigurðardóttir og Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Svo gæti farið að bæði blaklið KA fagni deildarmeistaratitli í dag og vinni þannig bæði bikara með tveggja vikna millibili. Bæði KA-liðin unnu Kjörísbikarinn fyrir hálfum mánuði og í dag fara fram lokaleikir í Unbroken-deildum karla og kvenna. Karlalið KA er reyndar þegar orðið deildarmeistari því aðalkeppinauturinn, Þróttur R., tapaði lokaleik sínum fyrr í vikunni. 

Helstu samstarfsaðilar blakdeildar KA, Errea, Fura, Bílaleiga Akureyrar, Norlandair, Nesbræður og VÍS, bjóða öllum frítt á leiki dagsins. 

Fyrri leikur dagsins er viðureign KA og Vestra í Unbroken-deild karla. Nú þegar er ljóst að KA hefur unnið Unbroken-deildina og fær því deildarmeistarabikarinn afhentan í leikslok. Fyrir leikinn í dag er KA með 48 stig, en Þróttur R. er með 47 stig og hefur lokið sínum leikjum.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    KA-heimilið kl. 17
    KA - Vestri

Kvennalið KA gæti reyndar einnig fagnað sínum deildarmeistaratitli áður en liðið spilar lokaleik sinn, gegn Þrótti R., kl. 19:30. Fyrr í dag eigast Afturelding og Völsungur við í Mosfellsbænum. Völsungur er eina liðið sem getur ógnað KA á toppi Unbroken-deildarinnar. Fyrir lokaleikina er KA með 43 stig og Völsungur 42. Hvernig sem leikur Völsungs og Aftureldingar fer er ljóst að sigur KA-kvenna myndi tryggja þeim titilinn.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    KA-heimilið kl. 19:30
    KA - Þróttur R.

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35

Hvað er það sem er svona óljóst?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:30

Framúrskarandi skólar á Akureyri – Samfélagsverkefni til framtíðar

Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:15

Bílastæði við Sunnuhlíð

Heimir Örn Árnason og Arna Rut Gunnarsdóttir skrifa
09. apríl 2026 | kl. 09:10

Málefni eldra fólks

Björn Snæbjörnsson skrifar
09. apríl 2026 | kl. 09:00