Fara í efni
Umræðan

Aðflugsljós eru ekki gæluverkefni

Í nýsamþykktri samgönguáætlun er margt sem skiptir máli fyrir uppbyggingu innviða um allt land. Þar er fjallað um vegi, hafnir og ferjur, flugvelli og mikilvægar framkvæmdir sem eiga að styrkja samgöngukerfið til framtíðar. En þegar horft er til Akureyrarflugvallar vekur það sérstök vonbrigði að aðflugsljós við braut 19 – aðflug til suðurs – eru hornreka og ekki inni á fyrsta tímabili áætlunarinnar. 

Breytingartillagan

Ég lagði fram breytingartillögu við samgönguáætlun þar sem lagt var til að framkvæmdinni yrði flýtt. Markmið tillögurnar var að hefja uppsetningu aðflugsljósa árið 2027 og ljúka framkvæmdinni 2028. Slík framkvæmd mun styrkja starfsemi flugvallarins, ný aðflugsljós skapa möguleika á bættum aðflugslágmörkum þannig að hægt er að lenda í verri veðurskilyrðum. Með því má bæta áreiðanleika vallarins og bætt getu hans til að sinna hlutverki sínu þar á meðal sem varaflugvöllur og alþjóðleg fluggátt fyrir Norður- og Austurland.

Tillögunni var hins vegar hafnað. Það eru vonbrigði, því aðflugsljósin eru öryggismál, líkt og fram kemur í umsögn Öryggisnefndar FÍA við samgönguáætlun:

,,Á Akureyrarflugvelli eru framkvæmdir við aðflugsljós ekki fyrirhugaðar fyrr en eftir 2030. Þetta er óásættanlegt með tilliti til flugöryggis, sérstaklega í ljósi aukins hlutverks Akureyrarflugvallar í beinu flugi til erlendra áfangastaða“.

Þau skipta máli þegar veður eru krefjandi, þegar skyggni er takmarkað og þegar tryggja þarf að flugvöllurinn geti nýst sem best þegar á reynir í erfiðum veðurskilyrðum.

Aðflugsljós norðan við flugbrautina á Akureyri. Ljósin hafa verið í skipulagsreglum flugvallarins frá árinu 2011, á aðalskipulagi Akureyrar frá 2018 og á nýju deiliskipulagi Akureyrarflugvallar.

Mikilvægi nýrra aðflugsljósa á Akureyrarflugvelli

Akureyrarflugvöllur hefur á undanförnum árum fengið aukið vægi. Beint millilandaflug hefur styrkt stöðu hans, ferðaþjónusta á Norðurlandi hefur notið góðs af og mikilvægi vallarins í varaflugvallakerfi landsins er augljóst. Ef stjórnvöld ætla að tala af alvöru um öruggar samgöngur og sterka innviði þarf forgangsröðunin að endurspegla það.

Það er einfaldlega of seint að bíða með aðflugsljós til áranna 2031–2035. Flugöryggi á ekki að bíða eftir næsta tímabili samgönguáætlunar. Þótt breytingartillögu minni hafi verið hafnað í nýrri samgönguáætlun er málinu ekki lokið af minni hálfu. Áfram þarf að þrýsta á um að aðflugsljós á Akureyrarflugvelli verði færð framar í forgangsröðina, enda hefur vöntun þeirra þegar truflað reglubundið millilandaflug sem nú er stundað

Í breytingartillögunni við samgönguáætlun lagði ég einnig til að framkvæmdatími við nýja akbraut við norðurenda flugbrautarinnar á Egilsstöðum yrði styttur um tvö ár og yrði þrjú ár en ekki fimm ár eins og gert er ráð fyrir í nýsamþykktri áætlun.

Til vinstri, aðflugsljósun fyrir braut 01 (aðflug úr suðri) á Akureyrarflugvelli. Neðri myndina tók greinarhöfundur á Ronald Reagan flugvelli í Washington DC í Bandaríkjunum. Aðflugsljós sjást í fjarska.

Fullfjármagnað með varaflugvallagjaldinu

Hér er rétt að hafa í huga að þessar framkvæmdir eru nú þegar fullfjármagnaðar í gegnum nýja varaflugvallagjaldið sem farið var að rukka inn 1. nóvember 2023. Ný samgönguáætlun er afturför fyrir flugið á Íslandi sem er stór og mikil atvinnugrein eins og við þekkjum. Hér er verið að draga úr fjárveitingum til flugsins. Það er ekki verið að fara eftir því plani sem unnið hefur verið eftir á síðustu árum.

Ég hef áður bent á að núverandi innviðaráðherra er að draga úr fjármagni sem ætlað hefur verið til nýframkvæmda og viðhalds í gegnum þjónustusamning ríkisins við Isavia Innanlandsflugvelli. Nú bætist við að innviðaráðherrann og meirihluti þingsins ætlar sér ekki að nýta að fullu það fjármagn sem innheimt er í gegnum varaflugvallagjaldið. Þar með er beinlínis gengið gegn löggjöf um varaflugvellina frá í júní 2023, sem styrkja átti hlutverk þeirra.

Leiðréttum kúrsinn

Sterkur Akureyrarflugvöllur er ekki aðeins hagsmunamál Akureyrar eða Norðurlands. Hann er hluti af öryggisneti þjóðarinnar. Þess vegna á uppbygging hans að vera forgangsmál í samgönguáætlun.

Nú er mikilvægt að leiðrétta stefnuna, leiðrétta kúrsinn.

Njáll Trausti Friðbertsson er alþingismaður Norðausturkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum 15. júní

Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifar
15. júní 2026 | kl. 11:00

Allir með

Linda Guðmundsdóttir og Kristján Sturluson skrifa
13. júní 2026 | kl. 10:00

Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra

Jónas B. Guðmundsson skrifar
11. júní 2026 | kl. 06:00

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15