Þórsarar enn í 9. sæti eftir tap fyrir Haukum
Þór er enn í níunda sæti Olísdeildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta, þegar tvær umferðir eru eftir. Þórsarar töpuðu með sex marka mun, 34:28, á heimavelli í gærkvöldi fyrir nýbökuðum bikarmeisturum Hauka. Átta lið komast í úrslitakeppni en Þórsarar eru líka í harðri botnbaráttu.
Eftir að Þórsarar komust í 2:1 gerðu gestirnir sjö mörk í röð. Haukarnir voru greinilega staðráðnir í að láta gleði eftir sigur í bikarkeppninni um síðustu helgi ekki koma í veg fyrir að einbeitingin væri í lagi og léku vel, sóknarleikurinn var hraður og vörnin var sterk. Þórsarar áttu í töluverðum vandræðum með að brjóta niður varnarmúr gestanna í fyrri hálfleik, og Grétar Ari markvörður reyndist þeim líka erfiður; sjálfstraustið virtist ekki mikið og miðað við hve mörg mistök þeir gerðu í sókninni var í raun ekki slæmt fyrir Þórsara að vera „aðeins“ fimm mörkum undir í hálfleik. Staðan var þá 13:18.

Brynjar Hólm Grétarsson stöðvar leikmann Hauka. Aron Hólm Kristjánsson er lengst til vinstri, Þórður Tandri Ágústsson vinstra megin og markmaðurinn er Nikola Radovanovic.
Eftir erfiðan fyrri hálfleik komu Þórsarar vel stemmdir til þess seinni, harðákveðnir i að gera betur og allt annar bragur var á liðinu. Þeir voru grimmari í vörn, Nikola Radovanovic varði tvö skot á skömmum tíma og heimamenn nálguðust Haukana smám saman. Hafþór Vignisson minnkaði muninn í eitt mark, 23:22, þegar 11 mín. voru liðnar, aftur munaði einu marki 24:23 og 25:24. Oddur Gretarsson gat enn minnkað muninn í eitt mark (26:25) þegar Þór fékk víti eftir að Haukar misstu mann út af og rúmar 12 mín. voru eftir en Grétar Ari markmaður sá við honum og fyrr en varði var munurinn aftur kominn í fimm mörk, og sex mörkum munaði í lokin.
Þórsliðið sýndi góða kafla í gær en mistökin voru hins vegar alltof mörg til að raunhæfur möguleiki væri á stigi eða stigum gegn sterkum andstæðingi. Vörnin var köflótt, mjög góð á kafla í seinni hálfleik en það dugði ekki til. Hafþór Már Vignisson var geysilega öflugur í sókninni; fór raunar á kostum: gerði 5 mörk úr 6 skotum og skapaði hvorki meira né minna en 16 færi! Þar af teljast 11 stoðsendingar því 11 færi urðu að marki. Aðrir gerðu góða hluti í sóknarleiknum en liðið datt niður á milli. Seint í leiknum fékk Brynjar Hólm að líta rauða spjaldið fyrir brot og blátt að auki, og verður því í banni gegn Aftureldingu á mánudaginn ef að líkum lætur. Það verður erfiður leikur á útivelli og lokaleikur Þórs í deildinni verður á heimavelli gegn KA á fimmtudag í næstu viku. Þá er næsta víst að alvöru stemning verður í Höllinni og spennandi að sjá hver niðurstaðan verður; hvort Þórsarar nái að hefna fyrir tapið í fyrri umferðinni og næli í dýrmæt stig í baráttunni – stig sem gætu orðið til þess að þeir slyppu við umspil við næst efst liðið í deildinni fyrir neðan um sæti í Olísdeildinni næsta vetur – eða KA-menn nái í stig sem gætu skipt máli um hvort þeir tryggi sér heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Hversu miklu máli leikurinn skiptir að því leyti veltur einnig á úrslitum annarra leikja, en ekki þarf að fjölyrða um að hart verður barist; stoltið skiptir miklu í nágrannaslagnum.

Þórður Tandri Ágústsson í dauðafæri í gær. Fyrir aftan hann er KA-maðurinn fyrrverandi, Skarphéðinn Einarsson sem lék mjög vel og markahæstur í liði Hauka.
Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 5, Oddur Gretarsson 5 (þar af 1 víti), Hákon Ingi Halldórsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Þórður Tandri Ágústsson 3, Þormar Sigurðsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 1, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1, Nikola Radovanovic 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 8, 25% – Tristan Ylur Guðjónsson 1 víti, 20%.
Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 9 (þar af 2 víti), Freyr Aronsson 8 (þar af 3 víti), Andri Fannar Elísson 5, Ólafur Ægir Ólafsson 5, Össur Haraldsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Hergeir Grímsson 1, Birkir Snær Steinsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 13 (þar af 2 víti) 34,2% – Magnús Gunnar Karlsson 1, 33,3%.
Tveir síðustu leikir Þórs í deildinni:
- Afturelding - Þór
Mánudag 9. mars kl. 19:30 - Þór - KA
Fimmtudag 12. mars kl. 19:30
Þróun skógarbotnsins
Edda og ADHD greiningin
Hús dagsins: Lundargata 9
Innra með okkur öllum er Birtíngur