Fara í efni
Pistlar

Slippurinn smíðar vinnsludekk í Hildi SH

Í Slippnum Akureyri er nú unnið að smíði vinnsludekks í fiskiskipið Hildi SH 777, sem er í eigu Hraðfrystihúss Hellissands hf. Smíðin er á lokametrunum, að því er segir á vef Slippsins, og fljótlega verður hafist handa við að koma búnaðinum fyrir um borð.

„Smíðin á vinnslubúnaðinum hefur gengið vel og við stefnum á að skipið verði klárt fyrir páska,“ segir Magnús Blöndal, sviðsstjóri DNG vinnslubúnaðar hjá Slippnum Akureyri. „Starfsfólk Hraðfrystihússins hafa lagt fram mikið af gagnlegum ábendingum í hönnunarferlinu sem skipta sköpum fyrir lokaútfærsluna."

Hildur SH 777, sem var smíðuð í Danmörku árið 2019, er 33,25 metra löng og 9,4 metra breið. „Þetta öfluga skip er sérhannað fyrir bæði tog- og dragnótaveiðar og gegnir lykilhlutverki í bolfiskveiðum fyrirtækisins,“ segir á vef Slippsins.

Magnús Blöndal til vinstri, sviðsstjóri DNG vinnslubúnaðar hjá Slippnum Akureyri og Örvar Ólafsson, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Hellissands.

Örvar Ólafsson, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Hellissands, segir miklar vonir bundnar við nýja vinnsludekkið:„ Við búumst við góðri aukningu í afköstum og betri nýtingu aflans. Samstarfið við Slippinn Akureyri hefur gengið afar vel og við hlökkum til að hefja veiðar með nýjum vinnslubúnaði,“ er haft eftir honum í tilkynningunni.

Þar segir einnig: 

„Fjárfestingin í nýja vinnsludekkinu samræmist framtíðarsýn Hraðfrystihúss Hellissands um sjálfbæra og hagkvæma vinnslu sjávarafurða, sem hefur einkennt starfsemi fyrirtækisins í meira en sjö áratugi. Slippurinn Akureyri hefur áratuga reynslu í hönnun og framleiðslu vinnslubúnaðar fyrir fiskiskip og leggur áherslu á gæðalausnir sem styðja við umhverfisvæna og arðbæra útgerð.“

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30