Fara í efni
Pistlar

Slippurinn DNG hannar lestarkerfi í nýtt skip

Samningur Slippsins Akureyri og Vinnslustöðivarinnar handsalapur hönnunarsamning á sjávarútvegssýningunni í Barcelona, f.v. Ásþór Sigurgeirsson, Sverrir Haraldsson, Magnús Blöndal og Sindri Viðarsson.

Slippurinn DNG á Akureyri mun hanna sjálfvirkt flutningskerfi í lest nýs togskips Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Samningur þar að lútandi var undirritaður á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í síðustu viku. 

„Samningurinn felst í því að Skipasýn, sem fer með hönnun 29 metra togskips fyrir Vinnslustöðina, hannar lest skipsins á þann hátt að hægt sé að koma fyrir 250-280 kera sjálfvirku flutningskerfi frá DNG by Slippurinn. Þar að auki er hannaður vinnslubúnaður með bestu mögulegu hráefnismeðferð að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu frá Slippnum DNG.

„Samstarfið við Vinnslustöðina í Vestmanneyjum og Skipasýn hefur verið mjög gott og það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur að koma að verkefninu svona á fyrstu stigum hönnunar. Samningurinn er rökrétt framhald af þeirri forvinnu sem hefur átt sér stað í verkefninu undanfarin misseri,“ segir Magnús Blöndal sviðsstjóri Slippsins Akureyri í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Sjálfvirkt lestarkerfi fyrir ferskfiskskip frá Slippnum DNG.

Kunningi frænda míns

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. maí 2024 | kl. 14:00

Dagur læknisins

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
17. maí 2024 | kl. 18:00

Kolefnissugur og endurskinshæfni gróðurlenda

Sigurður Arnarson skrifar
15. maí 2024 | kl. 13:30

Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 35 (Fagrastræti 1)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
15. maí 2024 | kl. 08:00

Þúfnaganga

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
13. maí 2024 | kl. 13:30

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30