Fara í efni
Pistlar

Sigfús, Ragnar og Ýmir framlengja við Þór

Ragnar Óli, Ýmir Már og Sigfús Fannar voru allir í byrjunarliði Þórs þegar liðið vann Þrótt í lokaumferð Lengjudeildarinnar í haust og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Mynd: Ármann Hinrik.
Knattspyrnudeild Þórs tilkynnti um helgina að Atli Sigurjónsson og Ágúst Eðvald Hlynsson væru á leið til félagsins á ný, eins og akureyri.net sagði frá, og í dag var greint frá því á vef Þórs að þrír leikmanna liðsins hefðu framlengt samning við félagið, framherjinn Sigfús Fannar Gunnarsson, markahæsti og besti leikmaður næst efstu deildar Íslandsmótsins í sumar, og varnarmennirnir Ragnar Óli Ragnarsson og Ýmir Már Geirsson.
 
  • Ragnar Óli skrifaði undir framlengingu á samningi sínum út keppnistímabilið 2028. Hann er 22ja ára varnarmaður og uppalinn Þórsari. Alls hefur hann leikið 108 leiki í meistaraflokki fyrir Þór, þar af 21 leik í Lengjudeildinni síðastliðið sumar.
  • Ýmir Már framlengdi sinn samning út keppnistímabilið 2026. Ýmir lék 19 leiki í Lengjudeildinni í sumar og hefur leikið alls 55 leiki í Þórsbúningnum. Hann hefur einnig leikið með Magna, KA og Dalvík/Reyni á meistaraflokksferli sínum.
  • Sigfús Fannar skrifaði undir framlengingu á samningi sínum út keppnistímabilið 2028. Hann lék 21 leik í Lengjudeildinni í sumar og var bæði markahæsti og besti leikmaður deildarinnar, þar sem hann skoraði 15 mörk. Alls hefur Sigfús spilað 82 leiki fyrir Þór í meistaraflokki en þessi 23 ára gamli sóknarmaður fór upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og hefur einnig leikið eitt tímabil með Dalvík/Reyni í meistaraflokki.

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00