Fara í efni
Pistlar

Samið um siglingar til Hríseyjar út árið

Vegagerðin hefur framlengt í annað sinn samning við Andey ehf. sem mun gilda frá 1. apríl til og með 31. desember 2023, um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógssands. „Þetta er gert til að ekki verði þjónustufall á siglingum Hríseyjarferju en það myndi valda mikilli röskun á samgöngum við Hrísey,“ segir á vef Vegagerðarinnar í dag.

Andey ehf. hefur séð um rekstur Hríseyjarferjunnar undanfarin ár en samningurinn rann út um áramótin. Vegagerðin bauð út siglingarnar að nýju og til stóð að gera nýjan samning á grundvelli útboðsferlis sem tæki gildi 1. janúar 2023. Hins vegar urðu ófyrirséðar tafir vegna kæru á útboðinu sem valda því að ekki er unnt að gera nýjan samning um þessar siglingar fyrr en niðurstaða í málinu liggur fyrir, segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

„Til að bregðast við þessu var ákveðið að semja tímabundið í þrjá mánuð við Andey ehf., 1. janúar þessa árs til 31. mars, til að samgöngur milli Hríseyjar og Árskógssands féllu ekki niður. Nú er það samningstímabil að renna út og lausn á kæru á útboðinu ekki í höfn svo samningur var framlengdur í annað sinn. Vegagerðin lýsir yfir sérstakri ánægju með hve vel starfsfólk Andeyjar ehf. hefur brugðist við þessum beiðnum.“

Kolefnissugur og endurskinshæfni gróðurlenda

Sigurður Arnarson skrifar
15. maí 2024 | kl. 13:30

Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 35 (Fagrastræti 1)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
15. maí 2024 | kl. 08:00

Þúfnaganga

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
13. maí 2024 | kl. 13:30

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Heilsukvíði

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
09. maí 2024 | kl. 10:00

Vaðlaskógur á 6. áratugnum

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2024 | kl. 09:30