Fara í efni
Pistlar

Saffran og Maika'i opna senn á Norðurtorgi

Veitingastaðurinn Saffran verður opnaður innan tíðar í nýbyggingu vestast á lóð verslanakjarnans Norðurtorgs. Akureyri.net greindi frá því fyrr á árinu að Saffran væri á leið norður og nú hefur verið upplýst að í húsnæðinu verður einnig veitingastaðurinn Maika'i, í samstarfi við Saffran.

„Nú er allt að smella og við stefnum að því að opna á næstu dögum,“ segir Bjarni Gunnarsson framkvæmdastjóri Saffran. Staðurinn er einkum þekktur fyrir kjúklingarétti en þar eru m.a. pítsur einnig á boðstólum. Bjarni segir Saffran leggja mikla áherslu á hollan og næringarríkan mat og því eigi samstarf við Maika'i vel við.
 
 
„Maika’i er íslenskt vörumerki sem býður upp á hollan og ferskan skyndibita – sérstaklega þekkt fyrir sínar acai skálar, ferskt kaffi og aðrar nærandi vörur,“ segir Bjarni. „Maika’i er rekið af hjónunum Ágústi Frey Hallssyni og Elísabetu Mettu Ásgeirsdóttur, sem hófu starfsemina með það að markmiði að bjóða einfaldan, fljótlegan og heilsusamlegan valkost fyrir fólk á ferðinni.“
 

Bjarni segir Maika’i hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og með þessu samstarfi við Saffran verður til nýtt og fjölbreytt matarúrval fyrir gesti á Norðurtorgi.“

Allt að verða klárt. Veitingastaðirnir Saffran og Maika’i verða í þessu húsi vestast á lóð Norðurtorgs.

Saffran er fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi með LifeTrack vottun, eins og Akureyri.net greindi frá fyrr á árinu, LifeTrack er nýtt íslenskt heilsuapp sem hjónin og Akureyringarnir Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir stofnuðu og aðstoðar fólk við alla grunnþætti heilsu. 

Akureyri.net fjallaði ítarlega um LifeTrack í nóvember eins og sjá má hér:

LifeTrack – Nýtt norðlenskt heilsuapp

Vilja auka heilsulæsi með nýju smáforriti

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30