Fara í efni
Pistlar

Lögmannshlíð: Messað á ný eftir endurbætur

Lögmannshlíðarkirkja hefur verið vinsæl undir athafnir á borð við giftingar, skírnir og fermingar. Framkvæmdum þar er nú lokið og því hægt að nota kirkjuna á ný.

Messað verður í Lögmannshlíðarkirkju á nýjan leik á sunnudag eftir langt hlé, en kirkjan hefur á undanförnum þremur árum fengið algjöra yfirhalningu.

Meðal þeirra framkvæmda má nefna að búið er að laga sig á gólfi í norðaustur horni kirkjunnar. Þá er búið að slípa og lakka gólfborð, mála bekki og veggi, færa prédikunarstólinn og hækka kirkjubekkina.

Messað verður klukkan 11 og verður boðið upp á kaffi og kleinur utandyra að messu lokinni.

  • Stutt myndband má sjá á Facebook síðu kirkjunnar þar sem prestarnir, séra Hildur Björk Hörpudóttir og Sindri Geir Óskarsson segja frá breytingunum og samkomunni á sunnudaginn. Smellið á samsettu myndina hér að neðan til að horfa.

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00