Fara í efni
Pistlar

Listasafnið: Árabátur pípuhattur Heklu Bjartar

SÖFNIN OKKAR – 111

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Hekla Björt Helgadóttir
Árabátur pípuhattur
2014
Blönduð tækni

Hekla Björt Helgadóttir vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og skáld. Verk hennar eru einlæg, hnyttin og draumkennd og oft undir sterkum áhrifum frá gjörningalist og leikhúsi. Hekla hefur sett upp einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og gjörningaviðburðum. Einnig er hún einn af stofnendum og listahópsins Kaktuss á Akureyri.

Verkið var hluti af sýningunni Kastalar, sem sett var upp í Mjólkurbúðinni á Akureyri í júní 2014, sérunnið fyrir sýninguna undir vinnuheitinu skúffuskáld: „Skáldið á margar mismunandi sögur í mörgum mismunandi skúffum. Sumar eru af vængjum og ávöxtum, á meðan aðrar eru af skærum og stingandi fálmurum. Það eru ótal leiðir til að segja sögur. Það má mála þær á striga, teikna þær á blað, segja þær með nótum, segja þær með orðum, á sviði, í bundnu eða óbundnu máli. En það eru líka til sögur sem skáldið segir aldrei. Það eru sögur skúffuskáldsins, skrifaðar fyrir engan nema hljóðar skúffur. Síðar kom að því að skúffurnar fylltust, og skáldinu fannst tímabært að koma reiðu á, öll sín ógrynni, hljóðu ljóða. Skáldið las því aftur ljóðin sín og ákvað að endurskapa þau, sem mínímalískar allegóríur. Formið var þrívítt og skáldið gaf þeim leiksvið úr gömlum skúffum til að láta ljós sitt skína.“

Verkið er eigu Listasafnsins á Akureyri.

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Oddeyrargata 26 (100 ára hús I)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. júní 2026 | kl. 06:00