Fara í efni
Pistlar

KA sækir Vestra heim á Ísafjörð í dag

Ásgeir Sigurgeirsson (11) jafnar metin fyrir KA gegn Stjörnunni í síðustu umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn endaði 1:1. Mynd: Ármann Hinrik

KA leikur gegn Vestra á Ísafirði í dag, þegar fjórir leikir fara fram í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. 

KA-menn hafa fikrað sig upp stigatöfluna í deildinni með tveimur sigrum og tveimur jafnteflum í síðustu fjórum leikjum. Á sama tíma hefur Vestri sigið af toppnum eftir góða byrjun í vor. KA er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu umferðir, en Vestri í 4. sætinu með 16 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Kerecis-völlurinn á Ísafirði 14:00
    Vestri - KA

KA gerði 1:1 jafntefli við Stjörnuna á heimavelli í síðustu umferð, vann þar áður Fram 2:1 á útivelli, Aftureldingu 1:0 heima og gerði markalaust jafntefli í Vestmanneyjum.

Leikurinn í dag verður sýndur á Sýn Sport

Staðan í deildinni

Mokkaskinn

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
16. júní 2025 | kl. 11:30

Kosningadagur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. júní 2025 | kl. 06:00

Ber hinu íslenska pyttsamfélagi vel söguna

Orri Páll Ormarsson skrifar
13. júní 2025 | kl. 07:30

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Grasagarðshlutverk Lystigarðsins

Sigurður Arnarson skrifar
11. júní 2025 | kl. 14:00

Öryggi og fegurð

Michael Jón Clarke skrifar
10. júní 2025 | kl. 14:30