Fara í efni
Pistlar

Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju í dag

Kór Akureyrarkirkju heldur sína árlegu Jólasöngva í dag, sunnudag 14. desember kl. 17.00 í Akureyrarkirkju. „Tónleikarnir eru orðnir fastur liður á aðventunni og tilvalið tækifæri til þess að njóta hátíðlegrar stundar í aðdraganda jóla,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

Flutt verður falleg jólatónlist, bæði vel þekkt lög og nýrri útsetningar, sem skapar hlýlega og notalega stemningu.

Auk Kórs Akureyrarkirkju kemur fram eldri barnakór kirkjunnar en stjórnun og hljóðfæraleikur er í höndum Eyþórs Inga Jónssonar, Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Þorvaldar Arnar Davíðssonar.

  • Tónleikarnir eru ókeypis og öllum opnir.

„Ungir sem aldnir eru hvattir til að koma og njóta kyrrðar og fegurðar aðventunnar í gegnum tónlist,“ segir í tilkynningunni frá kórnum.

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Oddeyrargata 26 (100 ára hús I)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. júní 2026 | kl. 06:00