Fara í efni
Pistlar

Hver er þróunin eftir sameiningu og göng?

Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, flytur í dag erindi á opinni málstofu deildarinnar – erindið kallar hann Þegar tvær sjávarbyggðir urðu að einni – Félagsleg og efnahagsleg þróun á Siglufirði og Ólafsfirði eftir sameiningu og göng.

Eins og áður eru öll velkomin á viðburðinn. Í tilkynningu segir: Grétar mun kynna niðurstöður úr norrænni rannsókn á aðlögunarhæfni strandbyggða á Vestur-Norðurlöndum og Norður-Noregi í verkefninu NORVALUE: Value Chains and Resilient Coastal Communities in the Nordic Atlantic.

„Í rannsókninni voru byggðir á Íslandi skoðaðar, þar á meðal Siglufjörður og Ólafsfjörður, sem sameinuðust í Fjallabyggð árið 2006. Verkefnið leggur áherslu á félags- og efnahagsleg áhrif sameiningarinnar, opnun Héðinsfjarðarganga, og þær breytingar sem fylgdu í menntun, ferðaþjónustu og þekkingariðnaði.“

Málstofan, sem stendur frá kl. 12.10 til 13.00, fer fram í stofu M102 og verður einnig streymt frá henni hér.

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00