Fara í efni
Pistlar

Grenndarstöð lokað við Skautahöllina

Á þessu korti má sjá nálægð strætóstöðvanna við grenndarstöðina þar sem hún er nú. Grenndarstöðinni verður lokað frá og með 1. júní. Skjáskot af map.is/akureyri.

Staðsetning grenndarstöðvar við Skautahöllina hefur reynst óheppileg vegna umferðar iðkenda Skautafélagsins um bílastæðið. Því var ákveðið að loka grenndarstöðinni frá og með 1. júní. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Fjöldið iðkenda listskautadeildar og íshokkídeildar Skautafélagsins á leið um bílastæðið við grenndarstöðina því hún stendur alveg við stoppstöð strætisvagna og skarast því iðulega gönguleið iðkenda á leið til eða frá æfingum og þeirra sem erindi eiga á grenndarstöðina.

„Unnið er að því að finna nýja og hentuga staðsetningu fyrir grenndarstöð sem gæti þjónað íbúum Innbæjar og Hagahverfis. Þangað til verður hægt að nýta nærliggjandi grenndarstöðvar, til dæmis við Ráðhúsið eða við Bónus í Naustahverfi,“ segir meðal annars í fréttinni. 

Með lokun þessarar grenndarstöðvar verða eftir átta grenndarstöðvar, en upplýsingar um sorphirðu og flokkun má finna á vef Akureyrarbæjar.

Kanínur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 11:30

Eldhúsdagsumræður

Jóhann Árelíuz skrifar
29. júní 2025 | kl. 06:00

Lýsið frá Tona og Jónda

Orri Páll Ormarsson skrifar
27. júní 2025 | kl. 10:00

„Við erum einu skrefi frá því að sagan endurtaki sig“

Halldóra Margrét Pálsdóttir skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

„Ég yfirgaf ekki Rússland, Rússland yfirgaf mig“

Sveinn Brimar Jónsson skrifar
26. júní 2025 | kl. 08:15

Skaðvaldar á birki

Sigurður Arnarson skrifar
25. júní 2025 | kl. 09:30