„Frekar svekktur með þessi úrslit“
Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði knattspyrnuliðs KA var ekki sáttur í leikslok eftir markalausa jafnteflið gegn Þór í viðureign Akureyrarliðanna í Bestu deild karla frammi fyrir tvö þúsund áhorfendum á nýja KA-vellinum í kvöld.
KA lyfti sér upp fyrir Stjörnuna með þessum úrslitum og er nú í níunda sæti deildarinnar eftir 16 umferðir með 15 stig, eins og Garðabæjarliðið. FH með 13 stig og Þór með 12 sitja í fallsætunum tveimur þannig að áfram skilja þrjú stig að Akureyrarliðin tvö.
„Já, ég er frekar svekktur með þessi úrslit. Mér fannst við vera mun betri aðilinn í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Við sköpuðum okkur mörg góð færi og margar góðar stöður og áttum að klára þetta þar. En okkur tókst ekki að setja boltann í netið,“ sagði Hans Viktor við akureyri.net eftir leikinn.
KA var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Þór náði yfirhöndinni á köflum í þeim síðari.
„Já, þetta var meira bras hjá okkur í seinni hálfleik. Eftir að hafa verið algjörlega með yfirhöndina í þeim fyrri jafnaðist þetta út en þá var samt ekki svakalega mikið að frétta. Samt fengum við þrjú og nýtingin hefði bara þurft að vera betri í kvöld.
Baráttan var til staðar hjá báðum liðum eins og við var að búast og við verðum að taka þessu eina stigi þótt það sé svekkjandi,“ sagði Hans Viktor Guðmundsson.
Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!
Áhrif ísaldar á gráelrideildina
Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi
Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús