Fara í efni
Pistlar

Eiður framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs

Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs. „Um er að ræða nýja stöðu hjá knattspyrnudeild og mun Eiður hafa yfirumsjón með öllu starfi deildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra,“ segir á vef Þórs þar sem tilkynnt er um ráðninguna.

Eiður var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla á síðasta tímabili auk þess að vera yfirmaður leikmannaþróunar. Hann stígur nú frá því starfi og færir sig alfarið á skrifstofuna.

„Eiður er 35 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun á efsta stigi á Íslandi. Hann er með UEFA Pro þjálfaragráðuna auk þess að hafa lokið Sports Management frá Johan Cruyff Institute í Barcelona.

Umsvif knattspyrnudeildar hafa aukist töluvert á undanförnum árum og er ráðningin á Eiði liður í að mæta þeim áskorunum sem því fylgja. Að mati deildarinnar er um að ræða löngu tímabært skref og væntum við mikils af Eiði í starfinu.“

Hafnarstræti 23b – 100 ára hús VIII

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. nóvember 2026 | kl. 22:00

Deildir og hlyntegundir heimsins

Sigurður Arnarson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Erfðafræði birkis

Sigurður Arnarson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:30

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30