Fara í efni
Pistlar

Körfubolti heima – íshokkí í höfuðborginni

Justin Andrew og félagar í Þór taka á móti liði Selfoss í kvöld á meðan Silvía Rán Björgvinsdóttir og liðsfélagar hennar í íshokkíliði SA halda suður og mæta Fjölni.

Heimaleikur dagsins er viðureign karlaliðs Þórs og Selfoss í körfubolta, en íshokkíkonur í SA halda suður og mæta Fjölni í fyrri leik liðanna í þessari tveggja leikjaferð Akureyrarliðsins suður yfir heiðar.

  • Körfubolti: Karlalið Þórs í körfubolta spilar annan leik sinn í þessari viku í kvöld þegar liðið tekur á móti Selfyssingum, einu af efstu liðum næstefstu deildar, Bæjarins beztu deildinni, í 9. umferð deildarinnar. Selfyssingar eru í 4. sæti deildarinnar með fimm sigra í fyrstu átta leikjum sínum. Þórsarar sitja hins vegar í 10. sætinu með tvo sigra í átta leikjum.
  • Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar á annasama helgi fram undan, en liðið fer suður og mætir liði Fjölnis í Egilshöllinni bæði á í kvöld og síðdegis á morgun. Tveggja leikja helgi í höfuðborginni hjá toppliði SA. Akureyringum hefur gengið vel það sem af er tímabilinu og er SA í toppsæti Toppdeildarinnar með 15 stig að loknum sex leikjum. SR hefur fimm stig að loknum sex leikjum og Fjölnir fjögur stig úr fjórum leikjum. Lið SA hefur aðeins tapað einum leik, eftir framlengingu, unnið hina fimm, þar af einn eftir framlengingu.

 

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild karla, 9. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Selfoss

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 19:45
    Fjölnir - SA

Deildir og hlyntegundir heimsins

Sigurður Arnarson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Erfðafræði birkis

Sigurður Arnarson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:30

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hafnarstræti 67; Skjaldborg – 100 ára hús VII

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00