Fara í efni
Pistlar

Blaklið kvenna best og Mateo þjálfari ársins

Meistaraflokkur kvenna í blaki; lið ársins hjá KA. Mynd af vef KA.

Meistaraflokkur kvenna í blaki er lið ársins 2025 hjá KA og þjálfari ársins hjá félaginu var kjörinn Miguel Mateo Castrillo en hann þjálfar bæði kvenna- og karlaliðs félagsins. Tilkynnt var um þessa niðurstöðu á afmælishátíð KA í dag. Þar var einnig greint frá því hver urðu fyrir valin sem íþróttafólk KA – sjá hér: Hallgrímur og Julia íþróttafólk KA 2025.

Þetta er í þriðja skipti sem Mateo er kjörinn þjálfari ársins hjá KA  og í sjötta sinn sem sú nafnbót er veitt. Meistaraflokkur kvenna í blaki var nú kjörinn lið ársins hjá KA í annað skipti.

Kvennalið KA í blakinu er handhafi allra stóru titlanna í blakinu þetta árið; varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari og auk ber auk þess titilinn Meistari meistaranna eftir að hafa unnið Völsung 3:0 í haust en Völsungur varð í 2. sæti Íslandsmótsins í fyrra.

Blakstelpurnar sem mættu á afmælishátíð KA í dag ásamt Miguel Mateo Castrillo, þjálfara ársins hjá KA:

„Í Unbrokendeildinni tapaði KA einungis tveimur leikjum af átján og tryggði sér deildarmeistaratitilinn eftir harða baráttu við Völsung. Í Kjörísbikarnum spilaði KA til úrslita við HK sem þær sigruðu eftir æsispennandi 5 hrinu leik þar sem Paula del Olmo var kosin besti leikmaðurinn. Í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn spilaði KA við Völsung og vann KA liðið það einvígi örugglega 3-0,“ segir á heimasíðu KA í dag.

Miguel Mateo Castrillo hefur verið potturinn og pannan í gríðarlegri velgengni meistaraflokksliða KA í blaki undanfarin ár en hann stýrir bæði karla- og kvennaliði félagsins, segir á vef KA í dag. Árangurs kvennaliðsins er áður getið en karlarnir urðu Íslands-, deildar- og bikarmeistarar. 

Nánar hér um lið ársins og þjálfarann Miguel Mateo Castrillo.

Lausnin 7/7

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
11. janúar 2026 | kl. 06:00

Aufúsugestir í Eyrarvegi

Jóhann Árelíuz skrifar
11. janúar 2026 | kl. 06:00

Lausnin 6/7

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. janúar 2026 | kl. 06:00

Sópaði Strákunum okkar út á fimm sekúndum

Orri Páll Ormarsson skrifar
09. janúar 2026 | kl. 14:00

Lausnin 5/7

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
09. janúar 2026 | kl. 06:00

Lausnin 4/7

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. janúar 2026 | kl. 06:00