Fara í efni
Pistlar

Blak: Þróttur jafnaði metin gegn KA

KA tapaði gegn Þrótti í dag og staðan í einvígi liðanna er nú jöfn. Mynd: Facebook-síða KA.

Þróttur Reykjavík sigraði KA 3:2 í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla í Laugardalshöllinni í dag. Liðin hafa því unnið sinn leikinn hvort og mætast í þriðja sinn á fimmtudaginn í KA-heimilinu.

Þróttarar komu ákveðnir til leiks í dag, eftir að hafa tapað 3:0 í fyrsta leiknum á Akureyri. Fyrsta hrinan var reyndar í járnum lengst af en með góðum endaspretti náðu heimamenn að landa 25:21 sigri. Þeir héldu síðan uppteknum hætti í næstu hrinu, leiddu allan tímann og unnu hana svo líka 25:21.

KA-menn voru ekki á því að leggja af stað heim alveg strax og svöruðu fyrir sig með því að vinna tvær næstu hrinur 25:19 og jafna þar með leikinn. Í jafnri oddahrinu reyndust Þróttarar sterkari þegar á leið og með því að skora þrjú síðustu stigin unnu þeir hrinuna 15:12 og leikinn þar með 3:2.

Þriðji leikurinn í úrslitaeinvíginu verður í KA-heimilinu á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta, og það lið sem vinnur þann leik getur síðan tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með því að vinna fjórða leikinn í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag. En komi til þess að liðin vinni hvort sinn leikinn verður hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn leikinn í KA-heimilinu miðvikudaginn 29. apríl.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30

Knappareynir

Sigurður Arnarson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00