Fara í efni
Pistlar

Blak: KA hafði betur í nágrannaslagnum

KA fagnaði sigri gegn Völsungi í viðureign liðanna í efstu deild karla í blaki í gærkvöld. Mynd: Facebook-síða KA.

KA hafði betur gegn Völsungi frá Húsavík í viðureign liðanna í efstu deild karla í blaki í KA-heimilinu í gærkvöld. KA vann þrjár hrinur en gestirnir eina og eru KA-menn ennþá í hörkubaráttu í toppslagnum.

KA vann fyrstu hrinuna mjög örugglega, 25:14, en Húsvíkingar bitu vel frá sér í jafnri annarri hrinu. KA náði þó að tryggja sér 25:23 sigur að lokum. Þriðja hrina þróaðist á svipaðan hátt og var lengi vel í járnum en núna voru það Húsvíkingar sem voru sterkari á endasprettinum og unnu hrinuna 25:20. Fjórðu hrinu vann KA örugglega, 25:18 og leikinn þar með 3:1.

Mikilvæg 3 stig í toppbaráttunni hjá KA og liðið er nú með 36 stig í þriðja sætinu en efstu liðin hafa leikið misjafnlega marga leiki. Næsti leikur KA verður gegn Þrótturum úr Neskaupstað í KA-heimilinu næstkomandi laugardag.

Staðan í Unbrokendeild karla í blaki

Hringir maður bara í Bjarna Fel?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 06:00

Ferðafélag Akureyrar 90 ára

Hjalti Jóhannesson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 06:00

Krossnefur og frændur hans

Sigurður Arnarson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 20:00

Hús dagsins: Lækjargata 3

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
02. febrúar 2026 | kl. 17:30

Heiðaharmur

Jóhann Árelíuz skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 06:00

Af hverju hanga greinar hengibjarka?

Sigurður Arnarson skrifar
28. janúar 2026 | kl. 11:00