Fara í efni
Pistlar

Annar sigur Þórsara varð til í Hveragerði

Christian Caldwell og Páll Nóel Hjálmarsson voru stigahæstir í Þórsliðinu með 35 og 23 stig, eða rétt ríflega helming stiga liðsins. Myndirnar eru úr leik gegn Skallagrími í Borgarnesi fyrr í vetur. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar fengu loks tækifæri til að fagna sigri í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir sóttu Hamar heim til Hveragerðis. Með sigrinum náði liðið að lyfta sér af botni deildarinnar, en þetta er annar sigurleikur liðsins í fyrstu níu umerðunum. 

Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik þar sem heimamenn í Hamri voru heldur á undan snerist taflið við í seinni hálfleiknum og Þórsarar unnu á endanum 26 stiga sigur. Hamar var með frumkvæðið í leiknum í framan af, en frábær seinni hálfleikur skilaði sigrinum í hús þar sem Þórsarar unnu 3. leikhluta með 15 stigum og þann fjórða með 17 stigum. 

  • Hamar - Þór (33-25) (22-24) 55-49 (15-30) (19-36) 89-115

Christian Caldwell skoraði flest stig Þórsara eins og jafnan áður. Hann setti niður 35 stig, en Páll Nóel Hjálmarsson kom næstur með 23 stig. Paco Del Aquilla er jafnan með álíka mörg stig og fráköst og engin breyting á því í kvöld, 17 stig og 16 fráköst. 

Helstu tölur hjá Þórsliðinu, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Christian Caldwell 35/7/3 - 39 framlagspunktar
  • Páll Nóel Hjálmarsson 23/3/0
  • Axel Arnarsson 20/4/5
  • Paco Del Aquilla 17/16/3
  • Smári Jónsson 9/0/4
  • Arngrímur Friðrik Alfreðsson 5/1/2
  • Týr Óskar Pratiksson 3/1/0
  • Finnbogi Páll Benónýsson 3/0/1

Þórsarar eru í 10. sæti deidarinnar, hafa unnið tvo leiki, en fyrir neðan þá eru Fylkir og Hamar sem bæði hafa unnið einn leik í vetur.

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00