Fara í efni
Pistlar

80 ára og eldri geta fengið fjórða skammt

Bólusetning á Slökkvistöðinni á Akureyri á síðasta ári. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Tilkynnt hefur verið að 80 ára og eldri eigi nú möguleika á því að fá fjórða skammtinn af bóluefni vegna Covid-19 á heilsugæslustöðvum HSN.

Til að geta fengið fjórða skammt bóluefnisins þurfa að lágmarki fjórir mánuðir að hafa liðið frá þriðja skammti bóluefnisins en ekki skiptir máli hvort viðkomandi hefur smitast af Covid-19 eða hvenær.

Bóka þarf tíma með símtali eða í gegnum mínar síður á vefnum Heilsuvera.

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar. Sjá nánar í upplýsingum um hverja starfsstöð.

Upplýsingar af heimasíðu HSN um bólusetningar á starfsstöðvum stofnunarinnar:

HSN Akureyri, Strandgötu 31

Tímapantanir í síma 432 4600 eða í gegnum Heilsuveru

  • Fimmtudaginn 12. maí kl. 13-15
  • Fimmtudaginn 19. maí kl. 13-15

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Blönduósi

Tímapantanir í síma 432 4100 eða í gegnum Heilsuveru

  • Miðvikudaginn 18. maí

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Dalvík

Tímapantanir í síma 432 4400 eða í gegnum Heilsuveru

  • Þriðjudaginn 17. maí

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar en panta þarf með viku fyrirvara.

HSN Húsavík

Tímapantanir í síma 464 0500 eða í gegnum Heilsuveru

  • Fimmtudaginn 12. maí kl. 14-16

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Kópaskeri

Tímapantanir í síma 464 0640 eða í gegnum Heilsuveru

  • Þriðjudaginn 17. maí kl. 11:30

Biðlisti er fyrir bólusetningar fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Raufarhöfn

Tímapantanir í síma 464 0620 eða í gegnum Heilsuveru

  • Miðvikudaginn 18. maí kl. 11:30

Biðlisti er fyrir bólusetningar fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Sauðárkróki, gengið inn við hlið endurhæfingar

Tímapantanir í síma 432 4236 eða í gegnum Heilsuveru

  • Miðvikudaginn 11. maí

Bólusetning er einnig í boði fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

HSN Þórshöfn

Tímapantanir í síma 464 0600 eða í gegnum Heilsuveru

  • Fimmtudaginn 12. maí kl. 13

Biðlisti er fyrir bólusetningar fyrir alla 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusettir eða hafa ekki hafið bólusetningar.

Eins og fram kemur í frétt á vef Landlæknis ákvað sóttvarnalæknir að þessum hópi yrði boðið upp á fjórða skammt bóluefnisins. Ákvörðunin byggir á nýtilkominni reynslu erlendis frá af gagnsemi slíkra bólusetninga fyrir aldraða, sérstaklega þá sem hafa sjúkdóma sem auka hættu á alvarlegum Covid-19 veikindum.

Um þróun stafafuru

Sigurður Arnarson skrifar
24. apríl 2024 | kl. 09:15

Kanínuholan sem ekki er hægt að klípa sig frá

Rakel Hinriksdóttir skrifar
24. apríl 2024 | kl. 06:00

Heklupeysur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
22. apríl 2024 | kl. 11:00

Fiðrildahrif

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
21. apríl 2024 | kl. 11:00

Hvað hét kona Goebbels?

Orri Páll Ormarsson skrifar
19. apríl 2024 | kl. 06:00

Hús dagsins: Spítalavegur 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. apríl 2024 | kl. 08:00