Fara í efni
Pistlar

120 í einangrun – átak í örvunarbólusetningu

Fimm bættust í gær í hóp þeirra sem eru í einangrun á Norðurlandi eystra vegna Covid; 137 eru nú í einangrun í landshlutanum. Á Akureyri eru um 140 manns í sóttkví og hátt í 120 í einangrun.

„Mikil fjölgun smita innanlands með vaxandi álagi á heilbrigðiskerfið, smitrakningu og sóttvarnahús er meginástæða hertra takmarkana,“ sagði í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu þegar mjög hertar aðgerðir voru kynntar í morgun. Sjá hér

„Vegna ástandsins hefur orðið veruleg röskun á ýmissi þjónustu Landspítala og skortur er á starfsfólki. Vaxandi álag er á Sjúkrahúsinu á Akureyri og sama máli gegnir um margar aðrar heilbrigðisstofnanir segir í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra. Þá sé starfsemi rakningateymis í uppnámi, sóttvarnahús að fyllast og álag á Læknavaktina og heilsugæsluna hefur aukist vegna faraldursins. Sóttvarnalæknir segir harðar sóttvarnaaðgerðir nauðsynlegar meðan unnið er að því að ná víðtæku ónæmi í samfélaginu með örvunarbólusetningum sem þegar eru hafnar. Gert er ráð fyrir að boða um 160.000 manns um allt land í örvunarbólusetningu fyrir áramót.“

Bólusetningar á Akureyri

Bólusetningarátak hefst 18. nóvember á slökkvistöðinni á Akureyri. Bólusett verður fjóra fimmtudaga - klukkan 13.00 til 15.00 í öll skiptin.

  • 18. nóvember
  • 25. nóvember
  • 9. desember
  • 16. desember

Á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) kemur fram að send verði út boð í örvunarskammta. Þar segir ennfremur að þeim, sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað nýtt sér fyrri boð,  sé velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri. Ekki sé þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í fylgd forráðamanna.

Á vef HSN segir jafnframt:

  • Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar sex mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Bólusettum yngri en 70 ára býðst örvunarskammtur þegar 6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Bólusettir 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
  • Bólusett verður með bóluefni frá Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
  • Munið að 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.
  • Þau sem eru búin með grunnbólusetningu og hafa fengið Covid eiga að bíða þangað til frekari fyrirmæli berast.

Sóttvarnalæknir mælir með þriðja skammti

Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir

Að baka brauð

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
04. júlí 2025 | kl. 06:00

Hús dagsins: Nonnahús (Aðalstræti 54)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
03. júlí 2025 | kl. 06:00

Skógrækt og fæðuöryggi

Pétur Halldórsson, Úlfur Óskarsson og Aðalsteinn Sigurgeirsson skrifa
02. júlí 2025 | kl. 09:15

Kanínur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 11:30

Eldhúsdagsumræður

Jóhann Árelíuz skrifar
29. júní 2025 | kl. 06:00

Lýsið frá Tona og Jónda

Orri Páll Ormarsson skrifar
27. júní 2025 | kl. 10:00