Fara í efni
Umræðan

Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?

Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um að Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal verði lagður niður.
 
Óvíst er hvernig fer með húseignir Hólastaðar viðhald þeirra og staðarhald, en viðtækar söluheimildir eru á fjárlögum:
 
„Hinn 1. júlí 2026 verður embætti rektors Hólaskóla – Háskólans á Hólum lagt niður. Sama gildir um háskólaráð skólans.“
 
Frá 1. júlí 2026 tekur Háskóli Íslands við eignum og skuldbindingum Hólaskóla – Háskólans á Hólum. Sama gildir um ónýttar fjárheimildir á fjárlögum fyrir árið 2026 fyrir Hólaskóla – Háskólann á Hólum.
 
Verða þau flutt á kennitölu og á fjárlagalið Háskóla Íslands og kennitala og fjárlagaliður Hólaskóla lögð niður.
 
„Þá flyst viðurkenning Hólaskóla – Háskólans á Hólum á fræðasviði auðlinda- og búvísinda auk tilgreindra undirflokka til Háskóla Íslands.“
(430. stjórnar­frum­varp Opinberir háskólar)
 
Fjallað er með orðagjálfri um „háskólasamstæður“ og „samstæðu háskóla“ „samræðunefndir“ osfrv. en lagaákvæðin eru skýr.
Þá opnar frumvarpið á einföldun möguleika að leggja aðra háskóla undir Háskóla Íslands í nafni „samstöðuháskóla“ og „samráðsnefnda“. Er skemmst að minnast aðfarinnar að Háskólanum á Akureyri á síðasta ári. Kemur að H.A. næst?
 
Sjálfsagt er að vera með öflugt samstarf og jafnvel verkaskiptingu á milli skóla en farsælast er að það sé gert á forsendum hvers skóla
 

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Hólar - Menntasetur um aldir
 

Frumvarpið felur í sér að Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal verði sviptur sjálfstæði sínu og færður undir Háskóla Íslands.

Samhliða er starfseminnni að stóru leyti ætlað að fara frá Hólastað á Sauðárkrók eða til Reykjavíkur.

Þá er ráðgert að hin sögufrægu skólahús – teiknuð af þeim Guðjóni Samúelssyni og Rögnvaldi Ólafssyni - er hafa hýst starfsemi skólans í meir en heila öld - verði framseld til einkaaðila og staðarhald er í uppnámi.

Þetta er efni frumvarps sem nú liggur fyrir Alþingi og fer undarlega hljótt og kemur óvænt eins og í bakið á velunnurum Hóla.

Bændaskólinn á Hólum var stofnaður 1882.

Skólahald á Hólum á sér mun lengri sögu, allt til þess að fyrsti biskup Jón Ögmundsson stofnaði þar latínuskóla laust eftir 1100.

Í gegnum aldirnar hafa margir helstu andans menn þjóðarinnar lært og starfað á Hólum. Dómkirkjan, Turninn og Staðarhúsin draga fram hina miklu helgi og sögu Hóla.

Sumarið 1981 var ég skipaður skólastjóri á Hólum.

Skólinn var þá langt niðri, byggingar og staðurinn í vanhirðu.

En ég fann strax að frá fyrsta degi hafði ég sterkt, öflugt og fórnfúst bakland. Skólanefnd skipuð fulltrúum frá öllum sýslum Hólastiftis lét mjög til sín taka.

Hólaskóli reis upp undir nýjum áherslum – hrossarækt og reiðmennsku, ferðaþjónustu og fiskeldi. Og ekki síst með endurreisn Biskupsstóls á Hólum sem og að verða vinsæll ferðamannastaður.

Aftur var gestkvæmt Heima á Hólum.

Allar þessar áherslur hafa gengið vel í starfi skólans. Borist hefur nægur fjöldi umsókna – eftir því sem ég kemst næst. Biskupssetur á Hólum með góðu starfi.

Heima á Hólum hefur eitt stutt annað sem heild.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sál skólans og Hólastaðar - Helgidómur þjóðarinnar

Frá stofnun Bændaskólans á Hólum 1882 hefur Hólastaður – saga hans og helgi – verið sál skólans.

Í minni 20 ára skólastjóratíð fór ég með öll staðarforráð og jarðarábúð líkt og fyrri skólastjórar höfðu gert.

Mín skoðun er að binda hefði átt í lög að æðsti yfirmaður skólans væri skyldugur að búa á Hólum og sitja staðinn sem staðarhaldari.

Því miður hefur Staðurinn og skólinn hins vegar verið aðskilin frá hvor öðrum fyrir nokkru.

Skólinn var fluttur frá Landbúnaðarráðuneyti til Menntamálráðuneytis, sjálf jörðin Hólar svipt lögbýlisrétti sínum.

Forræði og ábyrgð á Hólastað er skilin eftir munaðarlaus.

Skólanum var meinað að reka kaffistofu eða gestamóttöku.

Vígslubiskup hefur gert sitt við Dómkirkjuna.

Óljóst er hver fer með staðarforráð og ábyrgð en skólahús og umhirða hefur drabbast niður.

Sú staðreynd er öllum augsýnileg er ganga um staðinn.

Hver verður framtíð Hóla í Hjaltadal?

Ég óttast að sú gjörð að gera Hólaskóla að annexíu eða deild frá Háskóla Íslands og aukinheldur að flytja megin starfsemi skólans af staðnum muni fela í sér endalok hans.

Hólaskóli er og verður að vera sjálfstæður með höfuðstöð og starf heima á Hólum. Annars er hann ekki Hólaskóli.

Það er sorglegt að horfa á staðarhús Hóla í Hjaltadal drabbast niður og verða síðan seldar á uppboði til einkaaðila líkt og um þrotabú sé ræða.

Þjóðin glati þannig hinum forna og helga höfuðstað.

Ríkið - þjóðin ber ábyrgð á Hólastað

Þó að ýmsum finnist hringla tómlega í ríkiskassanum og mörg verkefni brýn þá getur ríkissjóður Íslands ekki verið svo aumur eða vesæll að hann geti ekki skift um nokkrar járnplötur, sett á fáein stormjárn, lagað nokkrar þakrennur, stöðvað leka, málað, hreinsað hlöð og ásýnd á þessa fornhelga stað.

Að ríkissjóður geti hið minnsta sýnt hinum merku húsum staðarins fulla virðingu, sem ekki hafa séð málningu í bráðum hálfa öld.

Norðlendingar stóðu saman um uppbyggingu Hólastaðar og Hólaskóla.

Nú er landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal í sumar.

Ég má ekki til þess að hugsa fyrir hönd Hólastaðar að ekki verði búið að mála og gera upp skólahúsin og staðarásýndina.

Þar sé einhver myndugur forsjáraðili er geti með stolti boðið:

„Velkomin Heim að Hólum“ og opnað húsakynni sín á hlaði Hóla í Hjaltadal. 

Jón Bjarnason er fyrrverandi ráðherra, þingmaður og skólastjóri á Hólum í Hjaltadal

Framboð sem byggir á trú á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 11:30

„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli

Karl Ingólfsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 16:30

Hreint ekki eins og atvinnuviðtal

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 13:00

Tjaldsvæðisreiturinn auglýstur „til sölu“

Benedikt Sigurðarson skrifar
25. janúar 2026 | kl. 10:00

Gott að eldast

Kristín Áslaug Guðmundsdóttir skrifar
19. janúar 2026 | kl. 08:00

Hafirðu ekkert gott að segja er betra að þegja!

Hlín Bolladóttir skrifar
16. janúar 2026 | kl. 11:25