Tíu milljarða halli
„Rekstrarstaða heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hefur sjaldan verið veikari.“ Þannig hefst minnisblað sem forstjórar sex heilbrigðisstofnana sendu fjárlaganefnd Alþingis í vikunni. Í vinnu okkar í nefndinni í haust við fjárlagafrumvarp ársins 2027 hefur komið skýrt fram hversu alvarleg staðan er. Áætlaður halli heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og Landspítala, ásamt því sem rekstur Sjúkrahússins á Akureyri stefnir fram úr upphaflegum fjárheimildum, nemur samtals rúmlega tíu milljörðum króna á þessu ári.
Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram við upphaf þings í september var gert ráð fyrir tæplega fimm milljarða króna afgangi af rekstri ríkissjóðs árið 2027, eða um 0,3%. Rekstrarvandinn sem blasir við hjá þessum stofnunum á þessu ári er því meira en tvöfalt stærri en áætlaður afgangur frumvarpsins. Þetta gefur okkur mælikvarða á umfang verkefnisins sem við stöndum frammi fyrir í fjárlaganefnd. Nú vinnum við að afgreiðslu frumvarpsins svo Alþingi geti samþykkt fjárlög ársins 2027 fyrir jól.
Hjá Landspítala stefnir í um fjögurra milljarða króna halla, eða um 3%. Þar er hallinn hlutfallslega minnstur þótt fjárhæðin sé há. Hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni er áætlaður halli 5–15% af veltu, eftir stofnunum, eða um fimm milljarðar króna samanlagt ef engin viðbótarframlög berast fyrir árslok. Sá halli bætist við uppsafnaðan halla fyrri ára. Hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri stefnir reksturinn rúma tvo milljarða króna fram úr upphaflegum fjárheimildum, eða rúmlega 15%.
Vinnutímastyttingin og heilbrigðiskerfið
Ég held að flestum sé ljóst að stytting vinnutímans hefur kostað heilbrigðiskerfið okkar mikla fjármuni. Launakostnaður Landspítalans hækkaði um 17% þegar heilbrigðisstéttir spítalans höfðu klárað sína samninganna í tengslum við styttinguna. Sambærilega tala fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri er tæplega 13%.
Það þarf áfram að manna vaktir allan sólarhringinn. Styttri vinnuvika, breytingar á vaktafyrirkomulagi og aukinn frítökuréttur vegna vakta hafa kallað á fleiri stöðugildi og auknar afleysingar. Samkvæmt frétt RÚV vantar Landspítala 2,4 milljarða króna til að mæta launaauka vegna kjarasamninga. Þegar ríkið gerir samninga sem hafa slíkan kostnað í för með sér verður það að sjá til þess að fjárveitingar til stofnananna standi undir honum.
Það er auðvitað eðlilegt að starfsmenn heilbrigðiskerfisins njóti bættra kjara eins og aðrir í tengslum við vinnutímastyttinguna. Hins vegar held ég að það sé óhætt að segja að kostnaðarmatið, útreikningarnir í tengslum við vinnutímastyttinguna þegar farið var í þennan leiðangur á sínum tímum hafi verið verulega vanmetið.
Verkefni heilbrigðisstofnanna á landsbyggðinni
Forstjórarnir benda einnig á kostnað við rekstur smærri hjúkrunareininga og dæmi um að húsaleiga sé þriðjungi hærri en húsnæðisgjaldið sem ríkið greiðir. Þegar heilbrigðisstofnun tekur við rekstri hjúkrunarheimilis af sveitarfélagi þarf fjármögnun að fylgja verkefninu. Sama gildir um sjúkraflutninga. Við í Norðausturkjördæmi þekkjum vel hvað langar vegalengdir þýða þegar veikindi eða slys ber að höndum. Það kostar að manna sjúkraflutninga og halda úti viðbúnaði á hverri starfsstöð, líka þar sem útköllin eru tiltölulega fá.
Verkefnið fram undan í fjárlaganefnd og í þingsal
Í fjárlaganefnd og í þingsal þurfum við nú að takast á við það stóra verkefni hvernig heilbrigðisstofnanirnar ljúka þessu rekstrarári og á hvaða grunni þær hefja það næsta. Ég tel eðlilegt að við miðum við raunverulegan kostnað ársins 2026 og tökum tillit til þeirra aðgerða sem stofnanirnar hafa þegar ráðist í til að bæta reksturinn. Það á bæði við um launakostnað og kostnað við lögbundna þjónustu á hverju svæði. Þar skiptir líka máli að fjárveitingar til heilsugæslu fylgi íbúaþróun og þjónustuþörf.
Fyrir jól þurfum við að taka ákvarðanir sem gera stofnununum kleift að skipuleggja mönnun og þjónustu fyrir næsta ár. Ég vil að við nýtum þá vinnu til þess að styrkja rekstrargrunninn til frambúðar. Fólk á að geta treyst því að heilbrigðisþjónustan sé til staðar þegar á þarf að halda, hvar sem það býr á landinu.
Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og nefndarmaður í fjárlaganefnd.
Icelandair ætti að horfa norður
Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar