Fara í efni
Fréttir

Starfsfólk FÉLAK hefur „djúpar áhyggjur“

Mynd af síðu Félagsmiðstöðva Akureyrar - FÉLAK á vef sveitarfélagsins.

Starfsfólk Félagsmiðstöðva Akureyrar – FÉLAK – segist hafa „djúpar áhyggjur“ vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi forvarnar- og frístundamála hjá Akureyrarbæ sem samþykktar voru á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn. Þetta kemur fram í bréfi sem starfsfólkið sendi Akureyri.net í dag.

Undir FÉLAK starfa félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni í 5.–10. bekk, Ungmennahúsið fyrir 16–25 ára og Virkið fyrir 16–30 ára.

Öllum 13 starfsmönnunum hefur verið sagt upp en níu boðin önnur störf innan Akureyrarbæjar. Sjö þeirra sem störfuðu sem forvarnar- og félagsmálaráðgjafar fengu boð um að taka við starfi sem félagsmiðstöðvarfulltrúar innan hvers skóla, skv. upplýsingum Akureyri.net. Engum þeirra var hins vegar boðin staða deildarstjóra forvarna- og frístundamála grunnskóla, en sjö slíkar stöður verða til við breytingarnar.

Aðskilnaður mikilvægur 

Starfsfólk FÉLAK segir fræðilegar rannsóknir meðal annars undirstrika mikilvægi þess að félags- og frístundastarf sé aðskilið frá skólastarfi. Einnig kemur fram í bréfi starfsfólksins að fyrirhugaðar breytingar munu skerða þá samþættingu og samfellu sem hefur verið grundvöllur starfsins „og stuðlað að traustri þjónustu við ungt fólk frá miðstigi til þrítugs.“

Starfsfólkið gagnrýnir framkvæmd breytinganna og segir meðal annars:

  • Skortur á samráði og faglegri umræðu um áhrifin hafi dregið úr áhrifum fagfólks og getu þess til að standa vörð um hagsmuni ungs fólks
  • Áhyggjur eru af því að hið eiginlega félagsmiðstöðva- og frítímastarf rýrist
  • Ekki virðist hafa verið leitað samráðs við fagfólk í æskulýðsfræðum um breytingarnar
  • Ekki var leitað til Ungmennaráðs Akureyrar við undirbúning breytinganna, „þrátt fyrir að samkvæmt viðmiðum Barnvæns sveitarfélags sem Akureyrarbær hefur skuldbundið sig til að fylgja, eigi öll mál sem varða ungmenni að fara fyrir ráðið“
  • „Þetta dregur úr lýðræðislegri þátttöku ungs fólks í eigin málefnum og stríðir gegn markmiðum verkefnisins um að efla rödd barna og ungmenna í ákvarðanatöku“

Bréf starfsfólks FÉLAK: Forvarna- og frístundadeild Akureyrar lögð niður

Frétt Akureyri.net um breytingarnar: Skipulagi forvarna og frístunda breytt