Skipulagi forvarna og frístunda breytt

Ákveðið hefur verið að breyta skipulagi forvarnar- og frístundamála hjá Akureyrarbæ. Í rökstuðningi fræðslu- og lýðheilsusviðs segir að vinna með börnum og unglingum styrkist og þjónusta í nærumhverfi þeirra muni aukast. Starfsfólk FÉLAK, Félagsmiðstöðva Akureyrar, hefur aftur á móti miklar áhyggjur af fyrirhugaðri breytingu.
Breytingin var samþykkt með níu samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn en tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
Samfélagssvið og fræðslusvið Akureyrarbæjar voru sameinuð frá og með 1. janúar 2022, í fræðslu- og lýðheilsusvið. Í því fólst að fræðslu-, forvarnar- og frístundamál heyrðu undir sama svið. „Með sameiningunni stóðu væntingar til þess að ná aukinni samfellu í vinnu og þjónustu við börn og ungmenni og tómstundastarfi heilt yfir,“ segir í rökstuðningi sviðsstjóra fræðslu- og lýðheilsusviðs sem lagður var fram á fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn.
Í rökstuðningnum segir að á grundvelli þess sem nefnt er að ofan hafi ákvörðun verið tekin um að „leggja niður núverandi skipulag forvarnar- og frístundamála.“ Megintilgangurinn sé tvíþvættur:
- Annars vegar að samþætta félagsmiðstöðvastarf 16 ára og eldri innan sveitarfélagsins
- Hins vegar að samþætta starfsemi grunnskóla og forvarnar- og félagsmiðstöðvarstarfs
Í rökstuðningnum segir ennfremur: „Með samþættingu frístundar-, skóla- og félagsmiðstöðvastarfs er vinna með börnum og unglingum styrkt, bæði almennt sem og í málum á fyrsta stigi farsældar barna. Í þessu felst aukin þjónusta í nærumhverfi barna og unglinga.“
Starfsfólk FÉLAK segir hins vegar að fræðilegar rannsóknir undirstriki mikilvægi þess að félags- og frístundastarf sé aðskilið frá skólastarfi. Einnig kemur fram í bréfi starfsfólksins að fyrirhugaðar breytingar muni skerða þá samþættingu og samfellu sem hefur verið grundvöllur starfsins „og stuðlað að traustri þjónustu við ungt fólk frá miðstigi til þrítugs.“
Rökstuðningur stjórnsýslubreytinganna
Starfsfólk FÉLAK hefur „djúpar áhyggjur“