Stórsvig: Sonja Lí Íslandsmeistari
Sonja Lí Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar varð Íslandsmeistari í stórsvigi í dag, laugardag, þegar keppni á Skíðamóti Íslands í alpagreinum hélt áfram í Hlíðarfjalli.
Keppni í skíðagöngu fer fram í Ólafsfirði og þar varð Akureyringurinn Einar Árni Gíslason í öðru sæti í göngu með hefðbundinni aðferð þar sem ræst var út með hópstarti. Íslandsmeistari í karlaflokki varð Dagur Benediktsson frá Ísafirði.
Sonja Lí var með besta tímann í fyrri ferð stórsvigsins. Hún fór brautina á 56,79 sek. Önnur var Þórdís Helga Grétarsdóttir úr Víkingi sem varð Íslandsmeistari í svigi í gær. Tími hennar var 57,21 sek.
Elín Elmarsdóttir Van Pelt, fjórða eftir fyrri ferð, fékk besta tímann í seinni ferðinni – 1:00,02 mín. Sonja Lí var með fjórða besta tíma í seinni ferðinni, 1:00,67, en það dugði til sigurs. Samanlagður tími hennar var 1:57,46 mín., 19 sekúndubrotum betri en tími Þórdísar Helgu. Anita Mist Fjalarsdóttir frá Akureyri varð í 8. sæti,
Í karlaflokki varð Gauti Guðmundsson úr KR Íslandsmeistari, Matthías Kristinsson úr Skíðafélagi Ólafsfirði varð í öðru sæti og þriðji varð Jón Erik Sigurðsson úr Fram.
Tobias Hansen varð efstur Akureyringa í stórsviginu, í 5. sæti. Ólafur Kristinn Sveinsson lenti í 10. sæti, Frosti Orrason í 19. sæti og Sindri Már Jónsson varð í 22. sæti.