Fréttir
Enn einn stórgóður dagur í Hlíðarfjalli
22.02.2026 kl. 14:30
Bílafjöld var á stæðunum í Hlíðarfjalli í morgun þegar Þorgeir Baldursson sendi drónann á loft og tók þessa mynd.
Margir eru á skíðum í Hlíðarfjalli í dag, þriðja daginn í röð, en gestir þó færri en í gær þegar örtröð var á bílastæðum og bílaröðin náði niður fyrir frístundabyggðina Hálönd, eins og akureyri.net sýndi með frábærum myndum Þorgeirs Baldurssonar.
- Frétt akureyri.net í gær:
Skíðablíða og bílaröð niður fyrir Hálönd
Aðstæður í dag eru afar góðar. Sólin skín að vísu ekki en færið er gott, sex stiga frost og hægur vindur. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, taldi í gær að bæði þá og á föstudag hefðu verið um 3.500 manns í fjallinu en hann sagði við akureyri.net að líklega yrðu alls 2.500 til 3.000 manns á svæðinu í dag.

Hlíðarfjall í dag. Myndir: Þorgeir Baldursson