Fara í efni
Íþróttir

Alþjóðlegt skíðamót í Hlíðarfjalli – MYNDIR

Myndir af Facebook síðu Skíðafélags Akureyrar: Barði Westin

Alþjóðlegt skíðamót, 66°North Cup, hófst í Hlíðarfjalli á mánudag og aftur átti að keppa í gær en þá varð að fresta keppni í stórsvigi sakir þess að of mikill snjór var í brekkunum og lélegt skyggni! Góðu veðri er spáð í dag og þá er stefnt að tveimur stórsvigsmótum.

Fyrsti keppnisdagur gekk vel fyrir sig þrátt fyrir drjúga ofankomu á köflum. Þá fóru fram tvö svigmót, fyrir og eftir hádegi. „Brautirnar létu á sjá en það var gríðarlega öflugur hópur sjálfboðaliða úr mörgum skíðafélögum sem lagðist á eitt og sá til þess að allt gengi skv. áætlun,“ segir á vef Skíðafélags Akureyrar.

Meðfylgjandi myndir tók Barði Westin á mánudag. Þær eru fengnar af Facebook síðu Skíðafélags Akureyrar og fleiri myndir hans má sjá neðst í  þessari frétt.

Elín Elmarsdóttir Van Pelt úr Víkingi sigraði á báðum svigmótum mánudagsins, Ólympíufarinn Sonja Lí Kristinsdóttir frá Akureyri varð önnur fyrir hádegi og Sara Mjöll Jóhannsdóttur, Ármanni, í þriðja sæti. Eyrún Erla Gestsdóttir Víkingi varð önnur á seinna mótinu og Sara Mjöll aftur þriðja.

Mynd: Barði Westin

Í karlaflokki varð Bjarni Þór Hauksson Víkingi hlutskarpastur fyrir hádegi, Gauti Guðmundsson úr KR í öðru sæti Carl Ottosson frá Bandaríkjunum í þriðja sæti. Í seinni svigkeppninni sigraði Matthías Kristinsson, Skíðafélagi Ólafsfjarðar, Jón Erik Sigurðsson úr Fram varð annar og þriðji Hollendingurinn Nick Zondag.

Einnig var keppt í flokkum 18 ára og yngri, bæði karla og kvenna. Úrslit má sjá hér á vef Skíðafélags Akureyrar.

Mjög mikið snjóaði aðfararnótt þriðjudagsins, unnið var í brekkunum um nóttina en áfram snjóaði og hvorki var nægilegt skyggni né nógu gott færi til þess að keppa. 

Skíðamót Íslands um helgina

Skíðamót Íslands í alpagreinum verður haldið í Hlíðarfjalli í framhaldi af alþjóðlega mótinu. Keppt verður föstudag, laugardag og sunnudag. Þá fer Skíðamót Íslands í skíðagöngu fram á Ólafsfirði í vikunni, mótið hefst á fimmtudag og sendur til sunnudags.

Dagskrá Skíðamót Íslands

ALPAGREINAR

Föstudagur 27. mars – Stórsvig

  • 14:00 – Fyrri ferð

  • 15:45 – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Laugardagur 28. mars – Svig

  • 10:00 – Fyrri ferð

  • 11:45 – Seinni ferð

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Sunnudagur 29. mars – Samhliðasvig

  • 10:00 – Start

  • Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

SKÍÐAGANGA á Ólafsfirði

Fimmtudagur 26. mars – Sprettganga (hefðbundið)
  • 15:00 – Fararstjórafundur

  • 17:00 – Forkeppni

  • 17:40 – Úrslit

Föstudagur 27. mars – Frjáls aðferð (einstaklingsstart)
  • 13:00 – 15–16 ára (5 km)

  • 13:30 – 13–14 ára (3,5 km)

  • 14:00 – Karlar 17+ (10 km)

  • 14:05 – Konur 17+ (10 km)

Laugardagur 28. mars – Hefðbundið (hópstart)
  • 11:00 – 15–16 ára (5 km)

  • 11:30 – 13–14 ára (3,5 km)

  • 12:00 – Karlar 17+ (15 km)

  • 12:05 – Konur 17+ (15 km)

  • 15:30 – Verðlaunahóf í Tjarnarborg

Sunnudagur 29. mars – Liðasprettur (frjáls aðferð)
  • 11:00 – 13–16 ára stúlkur

  • 11:20 – 13–16 ára drengir

  • 11:40 – Konur 17+

  • 12:10 – Karlar 17+

Myndir Barða West - WSTN STUDIO - frá keppni í svigi á mánudag:

Vaskir sjálfboðaliðar að störfum í brautinni á milli ferða í svigkeppninni á mánudag.