Fara í efni
Fréttir

Umgengni um helgina var ekki dæmigerð

Hér má sjá bjórdósir liggjandi í snjónum í Hlíðarfjalli á laugardag. Töluvert var um það að gestir tóku áfengi með sér í fjallið og gengu illa um.

„Mér þykir þetta bara voða leiðinlegt. Þetta er vanvirðing við svæðið og aðra gesti, sérstaklega fjölskyldufólk sem kemur hingað til að njóta sín,“ segir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, um umgengni hluta gesta á laugardag á skíðasvæðinu. 

Akureyri.net birti á sunnudag myndir og myndband þar sem bjórdósir og rusl sést á víð og dreif á skíðasvæðinu. Að sögn Brynjars eru nægar ruslatunnur á svæðinu en rusl hafi hins vegar ekki ratað þangað og margir gestir  hreinlega hent rusli þar sem þeir stóðu.  

Útihátíðarstemming víða um bæinn

Brynjar bendir á að hann hafi heyrt af  svipaðri hegðun víðar í bænum þessa helgi þar sem ruslatunnur hafi verið lítið notaðar þrátt fyrir að þær væru til staðar. „Það var eins og einhver útihátíðarstemning hefði myndast í bænum. Maður heyrði af þessu víðar, ekki bara hér uppi í fjalli, heldur líka t.d. í Skógarböðunum.“ Brynjar segir mikilvægt að rugla ekki saman áfengissölu á veitingasvæði skíðasvæðisins og þeirri hegðun sem sást í fjallinu um helgina. Á veitingasvæðinu hefur áfengi verið selt í plastglösum undanfarin fimm ár og hefur ekki verið neitt vandamál, að hans sögn. „Vandamálið er frekar fólk sem kemur með sitt eigið áfengi og neytir þess í brekkunum,“ segir Brynjar en mikið var um slíkt á laugardag eins og myndirnar í frétt akureyri.net sýna glöggt. Brynjar segir að það sé þekkt áskorun að gestir komi með eigið áfengi í fjallið, en erfitt sé að fylgjast með því og starfsfólk skíðasvæðisins hefur ekki verið að ganga um og kíkja í bakpoka hjá fólki. 

„After ski“ partí á laugardag

Á laugardag fór fram svokallaður aprés-ski viðburður á neðra svæði Hlíðarfjalls við skíðaskálann, milli klukkan 14 og 17. Viðburðurinn var auglýstur sem „Stærsta after ski á Íslandi 2026“ og var hann haldinn annað árið í röð. Fram komu tónlistarmenn og plötusnúðar, þar á meðal Blazroca, Daniil, Alaska, Saint Pete, DJ Eisi og DJ Snice, og var aðgangur ókeypis. Í auglýsingu fyrir viðburðinn á samfélagsmiðlum voru gestir meðal annars hvattir til þess að bera virðingu fyrir svæðinu og að „skíða fyrst og skemmta sér svo“, auk þess sem viðburðurinn var sagður upphitun fyrir áframhaldandi skemmtun í bænum um kvöldið.

Hér má sjá myndir frá Stærsta afterski á Íslandi 2026  sem haldið var í Hlíðarfjalli á laugardag. Myndirnar eru skjáskot frá Instagram reikningnum staerstaafterski. Alls voru um 2400 gestir í fjallinu á laugardag, þar á meðal hópar úr framhaldsskólum.

Vilja skapa góða upplifun í fjallinu

Brynjar ítrekar að  viðburðurinn sjálfur hafi gengið vel og að aðalvandamálið hafi verið fyrir utan það svæði. „Ég hef bara aldrei séð svona,“ segir hann og er þar bæði að tala um ölvun og slæma umgengi, en starfsfólk skíðasvæðisins þurfti ítrekað að fara um og tína upp rusl, enda ljóst að hluti þeirra sem mætti í fjallið þennan dag hafi ekki verið þar til að stunda skíði.

Brynjar segir að viðburðir á borð við aprés-ski séu liður í því að efla upplifun gesta og styrkja svæðið sem afþreyingarsvæði. „Við teljum okkur vera í samkeppni við skíðasvæði erlendis og viljum gjarnan fá fólk til okkar í stað þess að það fari erlendis,“ segir Brynjar en eftir atvik helgarinnar segir hann að skoða þurfi hvort slíkur viðburður verði haldinn aftur í fjallinu. Eins þurfi að skoða hvernig verði tekið á skipulögðum hópferðum framhaldsskólanema. „Ef fólk getur ekki komið hingað og hagað sér, þá erum við ekkert að bjóða þeim aftur í skipulagðar ferðir. Við viljum fyrst og fremst skapa góða upplifun í fjallinu fyrir alla gesti, sérstaklega fjölskyldufólk,“ segir hann.