Fara í efni
Umræðan

Skrítið er spennandi

Kæru kjósendur

Á morgun er kosningadagurinn. Bæði í Eurovision og sveitastjórnarkosningum. Ég viðurkenni hér með að ég er enginn eurovision aðdáandi þó ég hafi átt skemmtilegar stundir og minningar við að horfa á keppnina sem ég hef gert stöku sinnum. Þessi keppni hefur langa sögu og sennilega er hún hvergi jafn vinsæl og á litla Íslandi. Það er ekki nóg um að telja upp allan skalann frá a til ö. Ítalía var öðru megin og það er á allt öðru prófskírteini. Núna var ekki bara þrátefli og þungamiðja á allan veginn. Láta indíána tromma og hvergi vatn á töflunni. Við ákváðum að númera allt og alla og líka bíla, báta og flugvélar. Mörgum þykir að núna verði ekki aftur tekið og þar má sjá lögregluna slíta í sundur snærið með handáburði ofan á skíðagleraugunum. Öllu jafna er topp og bikiní sem ekkert verður fyrir manni nema jú á Húsavík. Utanbæjarmenn sem settu blómapottana á öll gleraugun og líka þau leituðu alls staðar. Við megum ekki gleyma því. Austurbær einnig. Mér þykir vænt um allt mannfólkið. Við erum öll fullkomlega ófullkominn og ef við viljum bæta okkur getum við gert það ef við höfum hvatann og löngunina til þess. En það eru engar kröfur gerðar á betrumbætur, en við sem höfum áhuga á að vaxa og þroskast getum það án þess að gera kröfur á hina sem ekki eru tilbúin til þess. Kötturinn veit þetta hann er í samfélagi mannfólksins til að heila það og kenna því.
Án katta værum við ansi stutt kominn og þess vegna var lausagöngubannið vanþakklæti og vantraust á náttúrunni.
Mér þykir vænt um Akureyri og ykkur Akureyringa. Sum ykkar eruð mér ekki af skapi og það er enginn skylda að líka vel við alla. Sum ykkar ætlið að kjósa fjórflokkinn og ekki ætla ég að dæma ykkur fyrir það. En þið sem ætlið að kjósa kattaframboðið eruð tilbúin í breytingar og þroska. Tilbúin að stíga út úr þægindarammanum og gefa traustinu séns. Ég hlakka til að heyra fyrstu tölur og líka þær síðustu. Fannst ykkur þessi skrif skrítin á köflum? Það er allt í lagi. Skrítið er spennandi.
Kjósum K ég treysti á ykkur kjósendur góðir treystið og verið óttalaus um framtíðina. Hún kemur alveg á réttum tíma.

Virðingarfyllst

Snorri Ásmundsson er oddviti Kattaframboðsins

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00