Þórhallur Jónsson fer í sérframboð
Þórhallur Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og mun tefla fram nýjum lista, Akureyrarlistanum, í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Þórhallur hefur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu ár, hefur í tvígang verið formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar og formaður fulltrúaráðs flokksins á Akureyri.
Þórhallur var bæjarfulltrúi frá 2018 til 2022. Hann var í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2018 og flokkurinn fékk þrjá menn kjörna en tapaði einum manni í síðustu kosningum og Þórhallur hefur verið varabæjarfulltrúi á kjörtímabili sem lýkur í vor.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, verður í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í vor og Heimir Örn Árnason, oddviti flokksins síðustu ár, færist niður í 2. sæti.
Ákveðið var í haust að raðað yrði á listann en ekki viðhaft prófkjör. Bæði Heimir og Berglind höfðu sóst eftir efsta sætinu en ákváðu síðan að lýsa yfir stuðningi hvort við annað. Þórhallur hafði gefið kost á sér í 2.-3. sæti en eftir samkomulag Heimis og Berglindar krafðist hann þess að haldið yrði prófkjör. Ekki var fallist á það, Þórhallur gaf þá kost á sér í 1. sæti en tapaði naumlega fyrir Berglindi á röðunarfundi fulltrúaráðs flokksins; aðeins munaði sex atkvæðum, Berglind fékk 61 atkvæði en Þórhallur 55.
Þórhallur gefur kost á sér í 2.-3. sæti