Skák: Tveir úr SA á HM öldungasveita
Þeir Áskell Örn Kárason og Rúnar Sigurpálsson úr Skákfélagi Akureyrar voru meðal þeirra sem skipuðu íslensku sveitirnar á heimsmeistaramóti öldungasveita í skák, sem haldið var í Albaníu nýlega. Áskell Örn var í sveit 65 ára og eldri, sem vann til bronsverðlauna, en sveit 50 ára og eldri þar sem Rúnar tefldi endaði í 5. sæti.
Sveit Íslands í flokki 65 ára og eldri var firnasterk en þrír úr gömlu „fjórmenningaklíkunni“, þeir Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason, voru þar á efstu borðum. Fjórða borði skiptu þeir með sér Áskell og Þorsteinn Þorsteinsson. Sveitin var í toppbaráttunni allan tímann og átti lengi vel möguleika á gullverðlaunum. Svo fór að lokum að bronsið varð þeirra, eftir spennandi lokaumferðir, en alls tóku 54 sveitir þátt. Áskell Örn tefldi á 4. borði sveitarinnar í 6 umferðum af 9 og fékk 3,5 vinninga.
Sá fjórði úr „fjórmenningaklíkunni“, Jóhann Hjartarson, fór fyrir sveit 50 ára og eldri sem hafnaði í 5. sæti. Aðrir í sveitinni voru þeir Þröstur Þórhallsson, Karl Þorsteins, Ágúst Sindri Karlsson, auk Rúnars. Rúnar tefldi á 4. borði í 7 umferðum af 9 á mótinu og landaði 5 vinningum. Í þessum aldursflokki voru 36 sveitir og þar af tvær frá Íslandi. Hin íslenska sveitin var skipuð skákmönnum frá Vestfjörðum og hafnaði sú sveit í 16. sæti.