Fara í efni
Fréttir

Góður árangur á Reykjavíkurskákmótinu

Markús Orri Óskarsson (t.v.) teflir hér gegn stigahæsta skákmanni landsins, Vigni Vatnari Stefánssyni. Mynd: Skákfélag Akureyrar.

Þrír félagsmenn úr Skákfélagi Akureyrar (SA) tefldu á hinu árlega Reykjavíkurskákmóti sem lauk í Hörpu í gær. Mótið stóð yfir í viku og tefldar voru níu umferðir. Þetta er stærsta opna skákmótið sem haldið er á Íslandi og keppendur voru á fimmta hundrað, flestir erlendir.

Haraldur Haraldsson, sem teflt hefur í þrígang með SA á Evrópumóti skákfélaga, fékk fjóra og hálfan vinning og má vel við una. Áskell Örn Kárason, formaður félagsins, stóð sig mjög vel og fór taplaus í gegnum mótið. Hann náði tveimur jafnteflum gegn stórmeisturum og kom í mark með fimm og hálfan vinning. Taflmennska Áskels veit á gott fyrir þátttöku hans á Heimsmeistaramóti landsliða 65 ára og eldri sem fer fram í Albaníu í næsta mánuði.

Efnilegasti skákmaður félagsins, Markús Orri Óskarsson, sem er nýorðinn 17 ára stóð sig frábærlega. Hann lagði að velli þýskan alþjóðlegan meistara og var ekki langt frá því að ná jafntefli gegn Íslandsmeistaranum Vigni Vatnari Stefánssyni. Markús fékk fimm og hálfan vinning og hækkar um 70 skákstig í kjölfarið. Fyrr í mars tefldi Markús með unglingalandsliði Íslands á móti í Mónakó þar sem hann stóð sig einnig mjög vel.

  • Páskaeggjamót SA fer fram á morgun skírdag og hefst klukkan 13:00. Teflt er í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni, gengið inn að vestanverðu.